08.09.26 - 07:30
Elvar Geir Magnússon
Chiesa hugsar sér til hreyfings frá Liverpool

Federico Chiesa,

Mynd: EPA

Jadon Sancho.

Mynd: EPA

Federico Chiesa,

Mynd: EPA

Það er komið að slúðurpakkanum á þessum fallega þriðjudegi en BBC tók saman það helsta sem er til umfjöllunar í götublöðunum. Meistaradeidin fer af stað í kvöld og sólin skín.
Ítalski sóknarmaðurinn Federico Chiesa (28) mun íhuga að yfirgefa Liverpool í janúar ef hann fær lítinn spiltíma eftir að hann snýr aftur úr meiðslum. (Football Insider)
Jadon Sancho (26), fyrrum kantmaður Manchester United og enska landsliðsins, á í viðræðum við að minnsta kosti tvö félög í ensku úrvalsdeildinni en hann er félagslaus. (Teamtalk)
AC Milan undirbýr tilboð í brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) um að fá hann á láni frá Real Madrid í janúar. (Calciomercato)
Manchester United hefur enn mikinn áhuga á að fá miðjumanninn Louis Page (18) frá Leicester City en félaginu mistókst að ganga frá kaupum á þessum enska unglingalandsliðsmanni á lokadegi félagaskiptagluggans. (ESPN)
Manchester City fylgist með spænska miðjumanninum Alex Baena (25) hjá Atletico Madrid en ólíklegt þykir að félagið muni reyna við hann í janúarglugganum. (Football Insider)
Liverpool og Manchester United hafa haft samband við Wolves varðandi möguleg kaup á portúgalska kantmanninum Matheus Mane (18) sem leikur með U21 landsliði Portúgals. (Ekrem Konur)
Brentford hefur hafið viðræður við þýska sóknarmanninn Kevin Schade (24) um nýjan samning til að reyna að draga úr áhuga Arsenal á leikmanninum. (Teamtalk)
Manchester United fær enska miðjumanninn Isaac Konde (16) frá Liverpool. (Fabrizio Romano)