08.09.26 - 20:31
Ívan Guðjón Baldursson
Emery og McGinn kátir: Skýr batamerki

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Unai Emery þjálfari Aston Villa svaraði spurningum eftir skemmtilegan sigur á útivelli gegn Club Brugge í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Aston Villa hafði betur í Belgíu
Lærlingar Emery áttu frábæran fyrri hálfleik og leiddu 1-3 í leikhlé, en seinni hálfleikurinn var jafnari. Belgarnir minnkuðu muninn úr vítaspyrnu en tókst ekki að setja jöfnunarmark.
„Ég er mjög ánægður í dag útaf því að við erum að sýna skýr batamerki frá leikjunum gegn Brighton og Hull City," sagði Emery, en Aston Villa er aðeins með eitt stig eftir þrjár fyrstu umferðir deildartímabilsins á Englandi - án þess að skora mark.
„Þetta er mikilvægt skref fram á við. Eina leiðin áfram er að halda áfram að leggja mikla vinnu á okkur á æfingasvæðinu og á vellinum. Við sýndum mikinn persónuleika í seinni hálfleik að missa forystuna ekki niður þrátt fyrir að lenda í erfiðleikum. Við gerðum vel að sigra gegn mjög sterkum andstæðingum."
Fyrirliðinn John McGinn skoraði og var valinn besti leikmaður vallarins. Hann tjáði sig einnig eftir lokaflautið.
„Við erum með mikið af nýjum andlitum eftir sumarið, þetta var fyrsti Meistaradeildarleikurinn á ferli Joao Gomes og George Hemmings. Við fórum á erfiðan útivöll og unnum við erfiðar veðuraðstæður," sagði McGinn sem gerði snyrtilegt mark.
„Ég er ánægður með markið sem ég skoraði, ég hef lært með hækkandi aldri að leggja boltann í netið frekar en að þruma honum. Ég fékk dauðafæri til að endurtaka leikinn í síðari hálfleik en nýtti það ekki."