Fotbolti.net
08.09.26 - 15:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þetta eru þeir 30 sem geta unnið gullboltann

Messi er tilnefndur.

Messi er tilnefndur.

Canon

Mynd: EPA

Búið er að opinbera hvaða 30 leikmenn koma til greina sem besti leikmaður heims. Sá leikmaður fær Ballon d'Or gullboltann.

Ousmane Dembele er handhafi gullboltans og hann er einn af þeim sem tilnefndir eru í ár. Rodri, sem vann verðlaunin 2024, er einnig tilnefndur.

Tíu leikmenn Evrópumeistarana í PSG eru tilnefndir og sex sem urðu heimsmeistarar með Spáni í sumar. Fabian Ruiz er sá eini sem tikkar í bæði box.

Þrír leikmenn Englandsmeistara Arsenal eru tilnefndir, tveir frá Manchester City og einn frá Manchester United. Fjórir leikmenn frá Barcelona, Real Madrid og Bayern München eru tilnefndir, tveir sem spila í Sádi-Arabíu og Lionel Messi er sá eini sem spilar í Bandaríkjunum. Messi hefur fengið verðlaunin átta sinnum, síðast árið 2023.

Pau Cubarsi og Lamine Yamal eru bæði tilnefndir til gullboltans og sem besti ungi leikmaður ársins. Þeir urðu Spánarmeistarar með Barcelona og heimsmeistarar með Spáni.

Veðbankar telja Harry Kane líklegastan til að hljóta gullboltann í ár. Þar á eftir koma Lamine Yamal, Kylian Mbappe og Rodri.
Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð
TENGT EFNI

Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð

Tilnefningar til gullboltans í karlaflokki:
Jude Bellingham (England, Real Madrid)
Pau Cubarsí (Spánn, FC Barcelona.)
Marc Cucurella (Spánn, Chelsea/Real Madrid)
Ousmane Dembélé (Frakkland, PSG.)
Luis Díaz (Kólumbía, Bayern München)
Bruno Fernandes (Portúgal, Manchester United)
Gabriel (Brasilía, Arsenal)
Erling Haaland (Noregur, Manchester City)
Achraf Hakimi (Marokkó, PSG)
Harry Kane (England, Bayern München)
Khvicha Kvaratskhelia (Georgía, PSG)
Lamine Yamal (Spánn, FC Barcelona)
Sadio Mané (Senegal, Al-Nassr)
Marquinhos (Brasilía, PSG)
Lautaro Martínez (Argentína, Inter Milan)
Kylian Mbappé (Frakkland, Real Madrid)
Nuno Mendes (Portúgal, PSG)
Lionel Messi (Argentína, Inter Miami)
João Neves (Portúgal, PSG)
Michael Olise (Frakkland, Bayern München)
Willian Pacho (Ekvador, PSG)
Julián Quiñones (Mexíkó, Al-Qadsiah)
Declan Rice (England, Arsenal.)
Rodri (Spánn, Manchester City/FC Barcelona)
Fabián Ruiz (Spánn, PSG)
William Saliba (Frakkland, Arsenal)
Ferran Torres (Spánn, FC Barcelona/PSG)
Dayot Upamecano (Frakkland, Bayern München)
Vinícius Jr. (Brasilía, Real Madrid.)
Vitinha (Portúgal, PSG)
Ousmane Dembele vann verðlaunin í fyrra og er einn af tíu leikmönnum PSG sem eru tilnefndir.

Ousmane Dembele vann verðlaunin í fyrra og er einn af tíu leikmönnum PSG sem eru tilnefndir.

Canon

Mynd: EPA

Fabian Ruiz varð bæði Evrópumeistari með PSG og heimsmeistari með Spáni.

Fabian Ruiz varð bæði Evrópumeistari með PSG og heimsmeistari með Spáni.

Canon

Mynd: EPA

Yamal og Cubarsi eru tilnefndir í tveimur flokkum.

Yamal og Cubarsi eru tilnefndir í tveimur flokkum.

Canon

Mynd: EPA

Sadio Mane er nokkuð óvænt tilnefndur í ár.

Sadio Mane er nokkuð óvænt tilnefndur í ár.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.