Fotbolti.net
08.09.26 - 20:14
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappé orðinn sá fimmti markahæsti í sögunni

Mbappé orðinn sá fimmti markahæsti í sögunni
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappé er orðinn fimmti markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildar Evrópu eftir að hann skoraði í leik Real Madrid gegn Inter sem er í gangi þessa stundina.
Real Madrid er tveimur mörkum yfir eftir skemmtilegan fyrri hálfleik. Inter sótti og skapaði mikið af hálffærum en tókst ekki að skora og gerðu slæm einstaklingsmistök það að verkum að heimamenn í Madríd skoruðu tvö mörk og komust nálægt því að bæta fleirum við.

Mbappé nýtti ein slík mistök til að skora fyrsta mark leiksins og var það 71. markið sem hann skorar í Meistaradeildinni.

Hann er þar með búinn að jafna Raúl González, goðsögn hjá Real Madrid, sem fimmti markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar.

Mbappé er 27 ára gamall og er 38 mörkum frá því að ná pólsku goðsögninni Robert Lewandowski í markaskorun. Lewandowski setti 109 mörk í Meistaradeildinni og er í þriðja sæti á listanum, á eftir Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, en hann spilar fyrir Chicago Fire í Bandaríkjunum í dag.

Ronaldo trónir á toppi listans með 141 mark í Meistaradeildinni. Messi er í öðru sæti með 129 mörk og þar á eftir koma Lewandowski og Karim Benzema.
Mbappé orðinn sá fimmti markahæsti í sögunni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.