Laugi Baldurs: Get ekki beðið um meira held ég
Auglýsing

Guðlaugur Baldursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson, þjálfari Þróttar, var skiljanlega hæstánægður eftir 7-0 sigur Þróttar gegn Víkingi Ólafsvík í Lengjudeildinni í kvöld.
„Ég er bara verulega ánægður. Við spiluðum virkilega vel, skoruðum góð mörk og héldum okkar marki hreinu," sagði þjálfari Þróttar.

„Ég get ekki beðið um meira held ég."
„Liðið spilaði bara mjög vel. Við vorum þéttir varnarlega, gáfum fá færi á okkur og svo gerðum við vel í sóknarleiknum. Við vorum effektívir og nýttum mikið af færum sem við höfum ekki verið að gera í sumar. Það gekk margt upp hjá okkur og við erum verulega sáttir."
Hægt er að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.