Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 01. september 2022 14:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gomes á förum frá Everton
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lille er að reyna festa kaup á Andre Gomes, leikmanni Everton, fyrir gluggalok.

Liverpool Echo segir að Gomes hafi yfirgefið æfingasvæði Everton snemma í dag og franski miðilinn L'Equipe segir að Lille hafi áhuga á að fá miðjumanninn í sínar raðir.

Samkvæmt frönskum fjölmiðlum er svo Gomes mættur til Lille og er að fara í læknisskoðun. Ef það er rétt þá eru allar líkur á því að hann verði leikmaður Lille fyrir gluggalok í kvöld.

Gomes er 29 ára Portúgali sem kom til Everton á láni frá Barcelona sumarið 2018. Hann var sumarið eftir keyptur til félagsins en hefur misst talsvert út vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner