Fotbolti.net
13.11.26 - 20:54
Brynjar Ingi Erluson

Kári hefur áhyggjur af Kristal - „Þetta lítur ekki vel út“

Kristall Máni fór meiddur af velli

Kristall Máni fór meiddur af velli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Tveir leikmenn íslenska landsliðsins meiddust í fyrri hálfleiknum gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Stefán Teitur fór meiddur af velli - „Það er ekki gott“
TENGT EFNI

Stefán Teitur fór meiddur af velli - „Það er ekki gott“

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 3 Ísland
Stefán Teitur Þórðarson fór meiddur af velli eftir átta mínútna leik, en hann virtist finna til aftan í læri og kom Hörður Björgvin Magnússon inn á í hans stað.

Síðar í leiknum steig Kristall Máni Ingason illa í grasið og var sárkvalinn, en gat gengið af velli og kom Arnór Sigurðsson inn fyrir hann.

„Eina sem er vont eru þessi meiðsli. Kristall Máni sem var búinn að vera mjög sprækur og Stefán Teitur verið tæpur. Alltaf leiðinlegt,“ sagði Rikki G á Sýn.

Kári Árnason hefur miklar áhyggjur af honum, en Kristall hafði verið mjög sprækur í byrjun leiksins.

„Ég hef pínu áhyggjur af Kristal. Þetta lítur ekki vel út,“ sagði Kári.

Aron Elís Þrándarson var sömuleiðis búinn að vera hrifinn af því sem hann sá.

„Agalegt. Var að fá fyrsta alvöru tækifærið sitt og búinn að standa sig vel þessar fyrstu mínútur. Þetta er bara agalegt,“ sagði Aron ennfremur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.