13.11.26 - 22:16
Brynjar Ingi Erluson
Hlógu að Búlgörum - „Vandræðalegt fyrir þessa gömlu fótboltaþjóð“

Mynd: KSÍ

Kári Árnason skemmti sér mikið yfir því að horfa á varnarleik Búlgara

Mynd: Víkingur - Hörður Ágústsson

„Tilfinningin var eins og maður væri að spila einhvern tölvuleik og andstæðingurinn væri búinn að leggja niður fjarstýringuna.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: KSÍ

Það var hlegið mikið í settinu hjá Sýn þegar farið var yfir 5-0 stórsigur Íslands á Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Ísland átti ekki í nokkrum vandræðum með Búlgara, sem voru arfaslakir, en íslenska liðið sýndi engu að síður mikla fagmennsku og nýtti sér veikleika heimamanna til fulls.
En var þetta einn besti leikur Íslands í mörg ár eða voru Búlgarar einfaldlega svona lélegir?
„Þetta var alla vega ekki besti leikur Íslands í mörg ár en þetta var eins og við töluðum um fagmannlegt. Við duttum aðeins niður í seinni hálfleik, en fórum aðeins niður á tempó-ið þeirra. Síðan bættum við í og sigldum þessu heim, en þetta var ekki gott lið,“ sagði Kári Árnason um leikinn.
Aron Elís Þrándarson tók undir hrósið í garð íslenska liðsins en greip til skemmtilegrar myndlíkingar þegar hann lýsti því hversu auðvelt verkefnið hefði verið.
„Fullt kredit á strákana að klára þetta en tilfinningin var eins og maður væri að spila einhvern tölvuleik og andstæðingurinn væri búinn að leggja niður fjarstýringuna. Þetta var það auðvelt fyrir okkur, en fullt kredit á strákana. Andri með þrennu, frábær og bara áfram gakk,“ sagði Aron.
Þeir fóru síðan yfir mörkin í leiknum og stöldruðu sérstaklega við annað mark Íslands, sem Orri Steinn Óskarsson skoraði, og sjálfsmark Búlgara sem var með eindæmum klaufalegt. Varnarleikur heimamanna vakti mikla kátínu í settinu og áttu þeir félagar erfitt með að halda aftur af hlátrinum.
„Ef við tölum hreint út þá er þetta búlgarska lið alveg hræðilegt og þessi varnarleikur í þessu marki og hinu markinu sem Orri skorar er vandræðalegt fyrir þessa gömlu fótboltaþjóð. Við gerum vel á móti lélegu liði.“
„Við hefðum getað slegið einhver met í þessum leik. Það er engin spurning,“ sagði Kári.
Það sem kórónaði síðan afleita frammistöðu Búlgara var hornspyrna sem heimamenn tóku í flýti þrátt fyrir að fáir leikmenn þeirra væru komnir inn í vítateiginn. Sú uppákoma vakti enn meiri hlátur í settinu.
„Þetta er algjörlega galið. Algjörlega fáránlegt,“ sagði Kári og gat ekki haldið aftur af hlátrinum.