Fotbolti.net
01.10.13 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Lukaku og Suarez frammi

Lukaku. Þvílíkur happafengur fyrir Everton.

Lukaku. Þvílíkur happafengur fyrir Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalslið vikunnar í enska er sótt frá Sky Sports að þessu sinni. Stillt er upp í leikkerfið 3-5-2 en liðið má sjá myndrænt hér neðst í fréttinni.
Hugo Lloris - Tottenham
Frakkinn gat ekkert gert í jöfnunarmarki John Terry í 1-1 leiknum á White Hart Lane á laugardag og fær sæti í vörninni.

Steven Caulker - Cardiff
Snjöll ákvörðun hjá Caulker að fara til Wales í ljósi þess að HM er næsta sumar. Líklegur til að vera í enska hópnum miðað við frammistöðuna.

John Terry - Chelsea
Terry er í vörninni. Jafnaði gegn Tottenham og var með hæstu sendingaprósentuna af öllum byrjunarliðsmönnum Chelsea. Ofan á það átti hann sjö mikilvægar hreinsanir.

Abdoulaye Faye - Hull
Eins og fjall í vörn Tigers í 1-0 sigrinum gegn West Ham. Missteig sig ekkert gegn sínum fyrrum samherjum.

Morgan Amalfitano - West Brom
Spilaði sinn fyrsta landsleiksleik fyrir Frakkland fyrir 18 mánuðum síðan. Annar landsleikur ætti að bætast við fljótlega ef hann heldur áfram að spila svona fyrir Albion. Skoraði fyrra mark WBA í óvæntum 2-1 sigri gegn Manchester United.

Leandro Bacuna - Aston Villa
Þessi hollenski U21-landsliðsmaður hefur verið notaður sem sóknarbakvörður og miðjumaður á tímabilinu. Seinni staðan virðist henta honum betur. Átti magnaða frammistöðu í 3-2 sigri gegn Manchester City þar sem hann lagði upp eitt og skoraði annað.


Ross Barkley - Everton
Þessi 19 ára leikmaður skoraði sitt fyrsta deildarmark á Goodison Park í 3-2 sigri gegn Newcastle. Hann og Romelu Lukaku náðu saman eins og Halli og Laddi.

Aaron Ramsey - Arsenal
Ramsey hlýtur bráðlega að springa, sjálfstraust hans er það mikið. Hann heldur áfram að fara á kostum og hefur átt draumabyrjun á tímabilinu. Lætur finna fyrir sér og skorar mikilvæg mörk. Hann var stöðugt ógnandi gegn Swansea og skoraði frábært mark.

Stephane Sessegnon - West Brom
Frábær frá upphafi til enda þegar Englandsmeistararnir voru lagðir. Í úrvalsliðinu er hann færður til vinstri en miðað við hæfileikana ætti hann ekki að eiga í vandræðum með að leysa þá stöðu.

Luis Suarez - Liverpool
Daniel Sturridge var frábær gegn Sunderland en með því að skora tvö mörk ýtir Suarez honum naumlega á varamannabekkinn í úrvalsliðinu.

Romelu Lukaku - Everton
Spilaði sinn fyrsta leik fyrir Everton á heimavelli. Kvöld sem hann gleymir seint. Newcastle náði engan veginn að ráða við Lukaku. Everton er að líta vel út.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Aaron Ramsey.

Aaron Ramsey.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalslið vikunnar í enska - Lukaku og Suarez frammi
Canon

Mynd: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.