Fotbolti.net
02.01.14 - 15:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Tveir frá Spurs og City

Kolarov skoraði gegn Swansea.

Kolarov skoraði gegn Swansea.

Canon

Mynd: Getty Images

Heil umferð fór fram í ensku úrvalsdeildinni í gær, nýársdag.

Hér að neðan má sjá lið umferðarinnar sem er gert með hjálp frá einkunnagjöf Goal.com.

Manchester City og Tottenham eiga bæði tvo fulltrúa í liðinu eftir góða útisigra.


Markvörður - Tim Howard (Everton)
Howard var vel á verði í 1-1 jafntefli Everton gegn Stoke á útivelli en hann gat lítið gert í markinu sem Oussama Assaidi skoraði.

Varnarmaður - Modibo Diakite (Sunderland)
Diakite var eins og klettur í vörn Sunderland gegn Aston Villa. Hann gat ekkert gert í því þegar Lee Cattermole gaf Aston Villa eina markið í leiknum með fáránlegum mistökum.

Varnarmaður - Daniel Agger (Liverpool)
Agger fékk tækifæri í hjarta varnarinnar í fjarveru Mamadou Sakho og nýtti það frábærlega.

Varnarmaður - Aleksandar Kolarov (Manchester City)
Kolarov var fastur fyrir í vörninni að venju gegn Swansea auk þess sem hann skoraði þriðja mark liðsins eftir laglegan sprett.

Miðjumaður - Jesus Navas (Manchester City)
Navas var besti leikmaður Manchester City í sigrinum á Swansea.

Miðjumaður - Mile Jedinak (Crystal Palace)
Jedinak hefur verið öflugur í liði Palace á tímabilinu og hann skilaði sínu í jafnteflinu gegn Norwich.

Miðjumaður - Oscar (Chelsea)
Chelsea hafði ekki náð að opna vörn Southampton áður en Oscar kom inn á sem varamaður á 53. mínútu. Eftir það lagði Brasilíumaðurinn upp tvö mörk og skoraði eitt. Fínt dagsverk.

Miðjumaður - Christian Eriksen (Tottenham)
Eftir að hafa opnað markareikning sinn í ensku úrvalsdeildinni á annan í jólum þá bætti Eriksen við öðru marki gegn Manchester United í gær auk þess að leggja annað upp.

Framherji - Emmanuel Adebayor (Tottenham)
Adebayor hefur farið á kostum eftir að hann fékk tækifærið með Tottenham og hann bætti við marki í safnið í gær með fínum skalla.

Framherji - Wilfried Bony (Swansea)
Bony skoraði tvívegis fyrir Swansea en það dugði ekki til gegn Manchester City.

Framherji - Oussama Assaidi (Stoke)
Assaidi er í láni hjá Stoke frá Liverpool en hann hefur minnt á sig að undanförnu með þremur mörkum á stuttum tíma. Þriðja markið kom gegn Everton í gær.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Oscar átti stórkostlega innkomu gegn Southampton.

Oscar átti stórkostlega innkomu gegn Southampton.

Canon

Mynd: Getty Images

Bony skoraði tvö gegn Manchester City.

Bony skoraði tvö gegn Manchester City.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.