Fotbolti.net
02.04.13 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Carroll í fremstu víglínu

Andy Carroll var flottur.

Andy Carroll var flottur.

Canon

Mynd: Getty Images

Það voru margir sem bönkuðu á dyrnar og gerðu tilkall til þess að vera í liði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.

Dwight Tiendalli, Samir Nasri, Matthew Jarvis, Kevin Mirallas, Gary O’Neil og Jay Rodriguez sýndu allir góða frammistöðu en því miður er bara pláss fyrir ellefu leikmenn!


Markvörður: Mark Scwarzer (Fulham)
Átti góðan leik í sigri Fulham gegn QPR þar sem hann afrekaði það meðal annars að verja vítaspyrnu.

Hægri bakvörður: Glen Johnson (Liverpool)
Hágæðaleikmaður. Hefur átt 48 skot á tímabilinu sem er meira en nokkur annar varnarmaður.

Miðvörður: Vincent Kompany (Manchester City)
Því miður hefur hann misst af mörgum leikjum vegna meiðsla en stuðningsmenn City geta glaðst yfir því að hann er mættur. Skoraði eitt af mörkunum fjórum gegn Newcastle.

Miðvörður: Jan Vertonghen (Tottenham)
Belginn er sífellt að finna sig betur í enska boltanum og var frábær gegn Swansea.

Vinstri bakvörður: Gael Clichy (Manchester City)
Þeir ljósbláu unnu Newcastle 4-0 og Clichy átti virkilega flottan leik.

Miðjumaður: Michael Carrick (Manchester United)
Ef United setur stigamet hljóta stuðningsmenn United að velta því fyrir sé að velja Carrick leikmann ársins.

Miðjumaður: Steven Gerrard (Liverpool)
Hefur átt frábært tímabil. Hefur komið að 18 mörkum á tímabilinu, aðeins 2008-09 og 2007-08 kom hann að fleiri mörkum.

Miðjumaður: Gareth Bale (Tottenham)
Þessi maður er ástæða þess að Tottenham er í þriðja sæti deildarinnar. Fyrsti leikmaður Tottenham í sögunni sem skorar 12 mörk eða fleiri á útivöllum.

Sóknarmaður: Gervinho (Arsenal)
Hefur oft verið harðlega gagnrýndur fyrir að fara illa með færin en hann hefur nú í fyrsta sinn skorað í tveimur deildarleikjum í röð. Lagði að auki upp tvö gegn Reading.

Sóknarmaður: Dimitar Berbatov (Fulham)
Berbatov heldur áfram að sýna snilli sína. Skoraði tvö mörk og niðurlægði Chris Samba í 3-2 sigri Fulham á QPR.

Sóknarmaður: Andy Carroll (West Ham)
Carroll slátraði West Brom og er farinn að líta aftur út eins og leikmaðurinn sem raðaði inn mörkum fyrir Newcastle.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.