Fotbolti.net
02.07.17 - 16:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Úlfur: Aldrei draumaleikur ef þú tapar

Auglýsing
Úlfur var svekktur með tapið í dag.

Úlfur var svekktur með tapið í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
<i>„Ég er ósáttur við að tapa þessum leik, það er aldrei gaman að tapa,\"</i> sagði Úlfur Blandon, þjálfari Vals, eftir 3-1 tap gegn ÍBV í Pepsi-deild kvenna í dag.

<i>„Þetta var ekki okkar besti leikur í sumar.\"</I>
„Mér fannst við sækja oft á tíðum ágætlega, en þær klára þetta vel og mér fannst þær (ÍBV) eiga sigurinn skilið.\"

Cloé Lacasse skoraði tvö mörk fyrir ÍBV og Valskonur virtust einfaldlega ekki ráða við hana.

„Hún er auðvitað góður leikmaður, hún kemst tvisvar í gegn og skorar tvisvar og það er eitthvað sem við þurfum að skoða.\"

Nú er langt frí framundan og þetta var svo sannarlega ekki draumaleikur fyrir Val, fyrir þetta langa frí.

„Það er aldrei neinn draumaleikur að tapa, það er bara svoleiðis. Það er alltaf hundleiðinlegt að tapa.\"

Viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.