Fotbolti.net
19.10.26 - 15:01
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Yfirferðin með Elízu Gígju: Hörmuleg byrjun Arsenal heldur áfram

Olivia Smith skoraði mark Arsenal

Olivia Smith skoraði mark Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn

Hræðileg byrjun Arsenal heldur áfram en þær fengu Birmingham í heimsókn á Emirates á laugardaginn. Birmingham hefur ekki enn tekist að vinna leik í deildinni og vonuðust þær rauðklæddu eftir því að komast á sigurbraut en þær hafa aðeins unnið tvo leiki í öllum keppnum á tímabilinu. Leikurinn endaði 1-1 þrátt fyrir að Arsenal hafi verið ofan á allan leikinn og í raun ótrúlegt að þær hafi ekki skorað fleiri mörk. Þær áttu 27 skot gegn fimm skotum Birmingham og 43 snertingar inn á teig andstæðingsins gegn þremur hjá Birmingham. Océane Hurtré kom Birmingham yfir á 53. mínútu og Olivia Smith jafnaði metin tæplega korteri seinna en þar við sat. Eftir aðeins sex leiki eru Arsenal komnar heilum 12 stigum á eftir toppliði Manchester City og í deild þar sem aðeins eru spilaðir 26 leikir er það allt of mikið. 

Þessi hörmungar byrjun liðsins kemur mikið á óvart en þær voru taldar líklegastar af mörgum til þess að vinna deildina á þessu tímabili. Eins og áður segir eru sex leikir búnir af mótinu og eru Arsenal með sex stig í áttunda sæti. Þetta var fimmti leikurinn í röð sem þeim mistekst að vinna í deildinni og er það í fyrsta skipti í sögu félagsins sem það gerist og ekki furða að áhorfendur hafi látið ósætti sitt í ljós eftir leik með því að púa á leikmennina þegar þeir gengu af vellinum. 

Þetta er ekki fyrsti leikurinn á tímabilinu þar sem Arsenal er ofan á í ýmsum tölfræðiþáttum en ná ekki að brjóta niður þéttan varnarmúr mótherjans. Þær hafa lent í vandræðum þegar lið leggjast niður á móti þeim og spila agaðan varnarleik, sem dæmi áttu þær 70 snertingar í teig andstæðingsins og 30 skot gegn Crystal Palace fyrr á þessu tímabili í leik sem endaði 0-0. Margir hafa velt fyrir sér hvað vandamál liðsins hefur verið þar sem þær virðast ná að skapa sér færi án þess að skila boltanum í markið. Helsta ástæðan sem bent hefur verið á er að Alessia Russo, sem hefur verið einn besti framherji deildarinnar síðustu ár, hefur ekki verið að spila sína stöðu heldur hefur Renee Slegers, þjálfari liðsins, látið hana spila fremsta á miðjunni. Næsti leikur Arsenal er gegn Tottenham næstu helgi en það er ljóst að eitthvað þarf að fara að gerast á næstunni ef Slegers ætlar að halda starfinu.  

Toppliðin halda áfram að sækja stig á Englandi

Tottenham, sem spila gegn Arsenal næstu helgi, spiluðu annan London slag núna um helgina þegar þær heimsóttu sjóðheitt Chelsealið. Eftir ágætis byrjun á mótinu hefur Tottenham fengið tvær blautar tuskur í andlitið og hafa nú fengið á sig 12 mörk í tveimur leikjum. Chelsea liðið spilaði frábærlega og settur Lauren James og Ellie Carpenter sitthvora tvennuna. Maika Hamano og Sjoeke Nüsken komu svo báðar inn af bekknum og settu sitthvort markið. Erin Cuthbert, fyrirliði liðsins, kom einnig inn á í sínum fyrsta leik fyrir félagslið síðan í lok síðasta tímabils en hún hefur verið að eiga við erfið meiðsli og mikill fengur fyrir þær bláklæddu að endurheimta hana. 

London City Lionesses unnu sinn sjötta leik í röð í öllum keppnum þegar þær fengu Everton í heimsókn. Delphine Casacarino kom heimakonum yfir á 24. mínútu og hin efnilega Freyja Godfrey tvöfaldaði forystuna tíu mínútum seinna. Hannah Cain minnkaði muninn í seinni hálfleik en nær komust Everton ekki og 2-1 því niðurstaðan. 

Fullkomin byrjun Manchester City heldur áfram en þær fengu Brighton í heimsókn í gær. Bunny Shaw kom City yfir á fimmtu mínútu og var svo aftur á ferðinni á 16. mínútu til að tvöfalda forystuna. Aðeins mínútu síðar kom Niamh Charles þeim í 3-0 og leit allt út fyrir að þær myndu rúlla yfir gestina. Þá tók Brighton við sér og Olivia Garcia minnkaði muninn í 3-1 á 31. mínútu og Caitlin Hayes náði svo að minnka muninn í 3-2 stuttu seinna. Eftir mjög fjörugan fyrri hálfleik róaðist leikurinn og ekkert mark leit dagsins ljós í þeim seinni. 3-2 því lokatölur og Manchester City sitja á toppnum með fullt hús stiga eftir 6. umferðir.

Wiegman framlengir í Englandi

Sarina Wiegman, þjálfari enska landsliðsins, hefur framlengt samnign sinn við enska sambandið en það verður að teljast mikið gleðiefni fyrir Englendinga. Samningurinn hennar átti að renna út eftir HM 2027 en hún hefur framlengt til ársins 2029. Undir Wiegman hefur enska liðið náð frábærum árangri en þær hafa náð í úrslit á öllum þremur stórmótunum sem hún hefur stýrt þeim á frá því hún tók við liðinu af Phil Neville árið 2021. Þær urðu Evrópumeistarar árið 2022, sóttu silfur á Heimsmeistaramótinu 2023 þar sem þær töpuðu gegn Spánverjum í úrslitum en náðu að hefna sín á þeim þegar sömu lið mættust í úrslitum EM 2025 þar sem Englendingar höfðu betur. 

Áður en Wiegman tók við enska landsliðinu stýrði hún því hollenska en hún gerði þær einnig að Evrópumeisturum 2017 á heimavelli ásamt því að koma þeim í úrslit á Heimsmeistaramótinu 2019 þar sem þær þurftu að sætta sig við silfur eftir tap gegn Bandaríkjunum. Wiegman hefur því unnið síðustu þrjú Evrópumeistaramót en hún er annar þjálfari í heiminum til þess að gera það á eftir Christina Theune sem vann mótið þrisvar í röð með Þýskalandi, 1997, 2001 og 2005. Þá er Wiegman fyrsti þjálfari í sögunni til þess að stýra liði í úrslitaleik stórmóts fimm sinnum í röð. 

Ljóst hvaða lið mætast í úrslitaeinvígum fyrir HM

Englendingar fóru auðveldlega í gegnum Grikki í sínu einvígi en seinni leikurinn fór 5-0 í Englandi, 8-1 samtals í einvíginu. Tvö mörk frá Alessia Russo og Lauren James og eitt frá Georgia Stanway tryggðu mjög öruggan sigur Englendinga en helsta fréttaefni leiksins var að Lexi Potter, leikmaður Chelsea, byrjaði leikinn og spilaði þar með sinn fyrsta leik fyrir A-landsliðið. Þá kom Freya Godfrey, leikmaður London City Lionesses, einnig inná í sínum fyrsta leik fyrir liðið. Eins og hefur komið fram mæta Englendingar Úkraínu í úrslitaeinvíginu en þær slógu Slóveníu út. 

Finnar, sem höfðu komið sér í góða stöðu eftir fyrri leikinn með 3-1 sigri, voru ekki að flækja málin og unnu aftur 3-1, nú á útivelli. Þær komust yfir eftir aðeins þrjár mínútur áður en Serbar jöfnuðu leika með sjálfsmarki frá Eveliina Summanen. Það kom þó ekki að sök þar sem Finnar kláruðu leikinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik og fara því öruggt áfram í umspilinu en þær mæta Ítalíu. 

Ítalir mættu Hvíta Rússlandi í sínu einvígi og voru, líkt og Finnarnir, í góðri stöðu fyrir seinni leikinn. Þær unnu fyrri leikinn úti 0-2 og fóru því á heimavöll með forystu. Þær komust yfir á níundu mínútu í seinni leiknum með marki frá Barbara Bonansea og það dró svo ekki til tíðinda fyrr en á 76. mínútu þegar Hvíta Rússland jafnaði metin. Fleiri urðu mörkin ekki og Ítalir fara áfram. 

Stórsigrar Noregs og Svíþjóðar

Norðmenn flugu í gegn um sitt einvígi gegn Rúmeníu en leikirnir tveir fóru 8-0 samanlagt. Seinni leikurinn, sem spilaður var í Noregi, fór 6-0 fyrir heimakonur þar sem Elisabeth Terland, leikmaður Manchester United, var atkvæðamest en hún setti þrennu. Norðmenn fara auðveldlega áfram og mæta Wales sem fóru í gegnum Albaníu í sínu einvígi. 

Svíar mættu Litháen sem reyndust engin fyrirstaða og einvígið endaði 15-0 fyrir Svíþjóð, seinni leikurinn endaði 10-0, en tæplega 90 sæti skilja liðin að á heimslistanum. Svíar koma því á fljúgandi siglingu inn í einvígi gegn Skotum sem unnu Tékka í sínu einvígi þær unnu seinni leikinn 3-2 á heimavelli þar sem Lauren Davidson, leikmaður Brann, spilaði eins og andsetin en hún skoraði fyrsta mark Skota og sóknarleikurinn fór meira og minni í gegnum hana. 

Íslenska liðið vann tvo mjög sannfærandi sigra gegn Króatíu í glugganum en það liggur fyrir að þær munu mæta Portúgal í úrslitaeinvíginu. Portúgal fór, líkt og Ísland, mjög auðveldlega í gegnum sína mótherja en þær mættu Norður-Írum í einvígi sem endaði 7-1. Seinni leikurinn fór 3-1 fyrir Portúgal og koma þær væntanlega fullar sjálfstrausts inn í einvígið við Ísland

Fólk í stúkunni var ósátt eftir jafnteflið

Fólk í stúkunni var ósátt eftir jafnteflið

Canon

Mynd: EPA

Alessia Russo er ekki að spila sína stöðu

Alessia Russo er ekki að spila sína stöðu

Canon

Mynd: EPA

Renee Slegers er í heitu sæti

Renee Slegers er í heitu sæti

Canon

Mynd: EPA

Lauren James skoraði tvö fyrir Chelsea

Lauren James skoraði tvö fyrir Chelsea

Canon

Mynd: EPA

Bunny Shaw setti tvö

Bunny Shaw setti tvö

Canon

Mynd: EPA

Niamh Charles kom City í 3-0

Niamh Charles kom City í 3-0

Canon

Mynd: EPA

Sarina Wiegman framlengir hjá Englandi

Sarina Wiegman framlengir hjá Englandi

Canon

Mynd: EPA

Enska liðið fagnar á Laugardalsvelli

Enska liðið fagnar á Laugardalsvelli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eveliina Summanen skoraði sjálfsmark

Eveliina Summanen skoraði sjálfsmark

Canon

Mynd: EPA

Barbara Bonansea fagnar marki

Barbara Bonansea fagnar marki

Canon

Mynd: EPA

Elisabet Terland skoraði þrennu fyrir Noreg

Elisabet Terland skoraði þrennu fyrir Noreg

Canon

Mynd: EPA

Portúgalska liðið fagnar marki

Portúgalska liðið fagnar marki

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.