Fotbolti.net
19.10.26 - 14:24
Elvar Geir Magnússon

Iraola tjáir sig um stöðuna á Frimpong og Szoboszlai

Jeremie Frimpong spilar ekki næstu leiki.

Jeremie Frimpong spilar ekki næstu leiki.

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segist ekki búast við að Jeremie Frimpong spili aftur fyrr en eftir landsleikjagluggann í nóvember.

Hann er bjartsýnni á Dominik Szoboszlai en báðir leikmennirnir meiddust í 2-1 sigri gegn Brentford á laugardaginn.

Szoboszlai missti af leiknum gegn Manchester City fyrr í þessum mánuði vegna meiðsla á læri en var kominn aftur í liðið um helgina. Ungverjinn þurfti þó að fara af velli í fyrri hálfleik eftir að vandamálið tók sig upp aftur en Iraola hefur nú staðfest að ekki sé búist við langri fjarveru.
Iraola gagnrýnir sína menn eftir sigurinn
TENGT EFNI

Iraola gagnrýnir sína menn eftir sigurinn

„Staðan á meiðslum Szoboszlai eru að ég held á sama stað og þau voru í síðustu viku. Meiðslin hafa ekki versnað. En líklega verðum við að vera aðeins þolinmóð þangað til hann jafnar sig að fullu," segir Iraola.

Frimpong varð fyrir vöðvameiðslum snemma í seinni hálfleik.
Dominik Szoboszlai.

Dominik Szoboszlai.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Coventry6-66
17Fulham7-35
18Nott. Forest7-45
19Sunderland7-84
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.