Fotbolti.net
19.10.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fjögur sett af þjálfurum á launum hjá Stjörnunni

Rúnar Páll var ráðinn þjálfari Stjörnunnar í síðustu viku.

Rúnar Páll var ráðinn þjálfari Stjörnunnar í síðustu viku.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Það hefur verið mikil þjálfaravelta hjá Stjörnunni á tímabilinu. Jökull Elísabetarson var látinn fara sem þjálfari liðsins í júní. Jón Þór Hauksson tók svo við liðinu en hann var látinn fara rúmum tveimur mánuðum síðar, í ágúst.

Þá tóku þeir Olgeir Sigurgeirsson, Brynjar Kristmundsson og Hákon Ernir Haraldsson við liðinu en þeir höfðu aðstoðað Jón Þór.

Þá er búið að ráða þjálfara fyrir framtíðina en Rúnar Páll Sigmundsson var tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins í síðustu viku. Hann stýrir þó ekki liðinu fyrr en á nýju tímabili.
Illa staðið að brottrekstrinum
TENGT EFNI

Illa staðið að brottrekstrinum

Í samningi Jóns Þórs var endurskoðunar ákvæði í lok tímabils og því losnar Stjarnan við hann af launaskrá í lok tímabils. Jökull verður hins vegar áfram á launaskrá þar sem hann var með lengri uppsagnarfrest. Hrannar Bogi Jónsson, aðstoðarmaður Jökuls, söðlaði um og samdi við KR eftir að Jökull var látinn fara frá Stjörnunni.

Óvíst er hvort að einhver í núverandi teymi verði áfram í teymi Rúnars Páls sem verður líklega tilkynnt á næstunni.

Stjarnan er því að greiða ansi mörgum þjálfurum meistaraflokks karla laun á þessum tímapunkti.

Liðið hefur valdið miklum vonbrigðum á tímabilinu, liðið hefur tapað helming leikja sinna á tímabilinu, 13 af 26, og mun enda í 8. eða 9. sæti deildarinnar eftir að hafa verið spáð 3. sætinu fyrir tímabil.
Jón Þór var ráðinn og rekinn á tímabilinu.

Jón Þór var ráðinn og rekinn á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.