Fotbolti.net
19.10.26 - 12:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þór og KA ekki tapað gegn síðustu andstæðingunum

Þór og KA ekki tapað gegn síðustu andstæðingunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór og KA berjast um eitt laust sæti í Bestu deildinni og munu örlögin ráðast, að öllu óbreyttu, um klukkan 16:00 næsta laugardag.

Þór er með örlögin í sínum höndum eftir að hafa sigrað Stjörnuna á laugardag en sama dag tapaði KA gegn Val. Þór er því með stigi meira en grannarnir fyrir lokaumferðina.
Þór sækir FH heim á laugardag og á sama tíma tekur KA á móti ÍBV.

Hvorki Þór né KA hafa tapað í deildinni gegn síðustu andstæðingum sínum þetta tímabilið.

Þór og FH gerðu jafntefli í Kaplakrika í júní og Þórsarar sigruðu svo FH á VÍS vellinum í september. Þór hins vegar tapaði gegn FH í Boganum í Mjólkurbikarnum í byrjun apríl.

KA sigraði ÍBV á Greifavellinum í maí en liðin gerðu svo jafntefli í júlí.

Það mun duga KA að gera jafntefli ef FH sigrar Þór á sama tíma þar sem markatala KA er mun betri en hjá grönnunum.

ÍBV og FH mættust innbyrðis á föstudag og ÍBV vann þá 3-1 heimasigur eftir að hafa spilað tæpan klukkutíma manni færri.

Lokaumferðin - laugardagur 24. október
Besta karla - Efri hluti
14:00 Víkingur R.-Fram (Víkingsvöllur)
14:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
14:00 ÍA-Keflavík (ELKEM völlurinn)

Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
14:00 FH-Þór (Kaplakrikavöllur)
14:00 KA-ÍBV (Greifavöllurinn)
Þór og KA ekki tapað gegn síðustu andstæðingunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR26+3053
3Fram25+1146
4Breiðablik26+236
5ÍA25-334
6Keflavík26-1129

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur26-234
2Stjarnan26-1431
3FH26-630
4Þór26-3127
5KA26-1326
6ÍBV26-1422
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.