19.10.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Með annað sjónarhorn á gluggann hjá ÍBV: Hefðu verið eins og þrír nýir leikmenn

Hermann kom einungis við sögu í fimm leikjum á tímabilinu. Hann spilaði síðast 16. ágúst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe sneri í sumar til baka eftir krossbandsslit í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas Vokes.

Rætt hefur verið félagaskiptagluggann hjá Eyjamönnum í sumar en þar var lítið um styrkingar á meðan liðin í kring styrktu sig. Aron Lucas Vokes var eina raunverulega styrkingin á hóp ÍBV en hann kom frá Selfossi sem er í 2. deild.
ÍBV, sem verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili, hefur verið gagnrýnt fyrir metnaðarleysi á markaðnum en Sigurður Arnar Magnússon, lykilmaður í liði Eyjamanna, hafði sína skoðun á glugganum.

TENGT EFNI
ÍBV fær risastóran mínus - „Stemningsleysi og deyfð yfir þessu"
„Ég skil þessa umræðu alveg og þetta lítur klárlega illa út núna. En við fáum Aron Lucas inn sem er frábær leikmaður, mér fannst klúbburinn gera vel í að finna hann því hann er klárlega með gæðin fyrir Bestu deildina. Omar (Sowe) var að komast af stað og hann lofaði rosa góðu á þessum tíma (þegar glugginn var opinn), en kannski datt svo aðeins niður. En ef hann hefði náð vopnum sínum eins og hann sýndi í dag (gegn FH), þá getur hann verið með betri sóknarmönnum í þessari deild. Svo gleymist líka að við vorum að fá Hermann Þór (Ragnarsson) inn. Hann lendir svo í því að viðbeinsbrotna."
„Það gleymist aðeins í umræðunni að Hemmi nær ekki að spila meira en (30) mínútur í leik allt tímabilið. Hemmi hefur brjálaða hæfileika og ef við hefðum fengið hann af stað, þá hefði þetta verið eins og þrír nýir leikmenn; Omar, Hermann og Aron Lucas. Þá hefði getað orðið helvíti erfitt að eiga við okkur."
„Við vorum óheppnir. Ég skil alveg umræðuna, þetta á alveg rétt á sér. Kannski hefðu þeir (stjórnin) átt að taka inn einn í viðbót til að stuða (hópinn). En ef við hefðum fengið þessa af stað þá held ég að við hefðum orðið erfiðir við að eiga. Þetta fór svona. Kannski hefðum við mátt bregðast öðruvísi við (á markaðnum), en ég skil báðar hliðar."
„Eftir á að hyggja er auðvelt að segja að þetta hafi verið röng ákvörðun þegar Hemmi kemst ekki af stað og Omar lendir í smá stíflu. Aron Lucas er betri leikmaður en spekingarnir eru að tala um. Vonandi nær ÍBV að halda í hann því hann er með mikla hæfileika," sagði Sigurður Arnar eftir sigurinn á FH.
„Það gleymist aðeins í umræðunni að Hemmi nær ekki að spila meira en (30) mínútur í leik allt tímabilið. Hemmi hefur brjálaða hæfileika og ef við hefðum fengið hann af stað, þá hefði þetta verið eins og þrír nýir leikmenn; Omar, Hermann og Aron Lucas. Þá hefði getað orðið helvíti erfitt að eiga við okkur."
„Við vorum óheppnir. Ég skil alveg umræðuna, þetta á alveg rétt á sér. Kannski hefðu þeir (stjórnin) átt að taka inn einn í viðbót til að stuða (hópinn). En ef við hefðum fengið þessa af stað þá held ég að við hefðum orðið erfiðir við að eiga. Þetta fór svona. Kannski hefðum við mátt bregðast öðruvísi við (á markaðnum), en ég skil báðar hliðar."
„Eftir á að hyggja er auðvelt að segja að þetta hafi verið röng ákvörðun þegar Hemmi kemst ekki af stað og Omar lendir í smá stíflu. Aron Lucas er betri leikmaður en spekingarnir eru að tala um. Vonandi nær ÍBV að halda í hann því hann er með mikla hæfileika," sagði Sigurður Arnar eftir sigurinn á FH.

Omar Sowe sneri í sumar til baka eftir krossbandsslit í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Lucas Vokes.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

TENGT EFNI
Stuðningsmenn ÍBV um fallið - „Uppsögn Láka upphafið að endinum“

TENGT EFNI