18.10.26 - 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
ÍR lokar gervigrasvellinum eftir alvarleg meiðsli iðkenda

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Meistaraflokkur karla ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Meistaraflokkur kvenna ÍR.

Mynd: Eiríkur Arnar Hansen

Mynd frá árinu 2018.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR hefur ákveðið að loka gervigrasvelli félagsins í Breiðholti eftir að alvarleg meiðsli hafa komið upp hjá ungum iðkendum að undanförnu. Það verður því ekki æft meira á vellinum sem hefur lengi verið í slæmu ástandi og hefur endurnýjun hans verið frestað í tvígang.
Ákvörðunin var tilkynnt foreldrum iðkenda í félaginu en þar kemur fram að ekki verði æft á vellinum fyrr en úttekt hefur farið fram á ástandi hans og nauðsynlegar úrbætur gerðar.
Ákvörðunin kemur í kjölfar alvarlegra meiðsla ungra og efnilegra iðkenda sem orðið hafa á vellinum að undanförnu. Miklar áhyggjur eru af öryggi iðkenda og telur fótboltadeildin hjá ÍR ekki forsvaranlegt að halda æfingum áfram við núverandi aðstæður.
Í tilkynningu til foreldra kemur fram að einhverjar lagfæringar hafi verið gerðar á vellinum í haust og félaginu tjáð að hann væri í lagi. Stjórn knattspyrnudeildarinnar vill hins vegar að óháður aðili meti ástand vallarins áður en æfingar hefjast að nýju.

Metinn óleikhæfur af KSÍ árið 2025
Saga málsins nær aftur til ársins 2025 þegar til stóð að skipta um gervigras á vellinum. Samkvæmt upplýsingum frá fótboltadeild ÍR hafði KSÍ þá metið völlinn óleikhæfan, fyrir 5. deildarlið Léttis og kvennalið ÍR í 2. deildinni, og áttu framkvæmdir að hefjast um haustið.
Af þeim framkvæmdum varð hins vegar ekki og var þeim frestað um eitt ár. Þegar kom að haustinu 2026 var framkvæmdunum aftur frestað og er nú stefnt að því að þær hefjist vorið 2027.
Í tilkynningu fótboltadeildarinnar er óvissan um framkvæmdirnar gagnrýnd og bent á að nýja gervigrasið, sem ætlað er á völlinn, hafi legið óhreyft á svæði félagsins frá árinu 2025.
„Hvort af því verður veit nú enginn en til að nudda salti í sárin hefur gervigrasið sem til stendur að leggja á völlinn legið óhreyft á svæðinu frá því í fyrra,“ segir í tilkynningunni.
Æfingar færðar inn í knatthöllina
Lokun gervigrasvallarins hefur óhjákvæmilega áhrif á æfingahald félagsins. Til stendur að færa æfingar inn í knatthöll ÍR eftir því sem aðstæður leyfa og reyna að bæta upp þær æfingar sem falla niður með öðrum æfingatímum eða öðrum úrræðum. Stærð knatthallarinnar er tæplega hálfur fótboltavöllur og gæti þetta því verið erfitt fyrir félag með hátt í 700 iðkendur.
Fótboltadeildin gerir sér grein fyrir því að breytingarnar geti valdið raski hjá iðkendum og foreldrum en leggur áherslu á að öryggi iðkenda verði að hafa forgang.
„Við vitum að tilfæringar á æfingum valda árekstrum og raski en við vonumst auðvitað til að þið sýnið okkur skilning á þeirri stöðu sem komin er upp. Ákvörðunin er tekin með hagsmuni iðkenda okkar að leiðarljósi,“ segir að lokum í tilkynningu knattspyrnudeildarinnar.