19.10.26 - 15:19
Elvar Geir Magnússon
Fær City stigafrádrátt sem festir liðið í B-deild í tvö ár?

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Man City.

Mynd: EPA

Beðið er eftir niðurstöðu í því hvaða refsingu Manchester City mun fá eftir að hafa verið dæmt fyrir alvarleg brot á fjárhagsreglum.
Samkvæmt heimildum Daily Mail mun liðið fá risastóran stigafrádrátt sem mun halda liðinu í Championship-deildinni í tvö ár.

TENGT EFNI
Hvað verður um Man City?
City hefur alltaf neitað sök og áfrýjaði niðurstöðum óháðu nefndarinnar. En nú segjast enskir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að City fái grimmilega stigafrádrátt sem tryggir fall úr ensku úrvalsdeildinni.
City gæti svo fengið annan stigafrádrátt sem mun halda þeim í B-deildinni í eitt ár til viðbótar segir í fréttinni.
Hvort þessar heimildir Daily Mail reynist réttar á tíminn eftir að leiða í ljós. Keppinautar City krefjast þess að málið verði leyst fyrir lok tímabilsins.