Fotbolti.net
19.10.26 - 13:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Patrick Pedersen hvílir út tímabilið

Patrick Pedersen hvílir út tímabilið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar, Patrick Pedersen, hefur ekki spilað með Val í síðustu tveimur leikjum og mun ekki heldur spila þegar Valur heimsækir Stjörnuna í lokaumferðinni um næstu helgi.

Daninn fann fyrir eymslum í landsleikjahléinu, fór í myndatöku og þá komu í ljós skemmdir á sinum bæði í hægri og vinstri fæti og ákveðið að best væri fyrir hann að hvíla í lokaleikjunum til að ná sér góðum af meiðslunum.
Patrick sleit hásin í ágúst í fyrra og fór svo í aðra aðgerð síðasta vetur vegna annarra meiðsla. Hann sneri aftur á völlinn í júlí, kom við sögu í þrettán leikjum á tímabilinu, skoraði þrjú mörk og lagði upp þrjú.

Valur mun enda í 7. sæti Bestu deildarinnar sem eru vonbrigði á Hlíðarenda. Patrick verður 35 ára í næsta mánuði og er samningsbundinn Val út næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.