19.10.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Var grátlega nálægt því að bæta metið

Þórður Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Alls höfðu fimm leikmenn skorað 19 mörk í Bestu deildinni þegar Benoný Breki Andrésson bætti markametið fyrir tveimur árum með því að skora 21 mark.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 18. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Þú getur skráð þig með því að smella hérna.

Víðir Sigurðsson fjallaði um þessa leikmenn í pistli hér á Fótbolta.net en líklega má telja Þórð Guðjónsson, Skagamann, óheppnastan að hafa ekki farið í 20 mörk eða meira.
Skagamenn voru þegar orðnir Íslandsmeistarar þegar Þórður skoraði sitt 19. mark á tímabilinu, undir lok fyrri hálfleiks í 2-0 sigri á Keflavík í næstsíðustu umferðinni.
ÍA skoraði og skoraði þetta ár, heil 62 mörk í 18 leikjum. Þórður virtist eiga alla möguleika á að ná 20. markinu og hann var grátlega nálægt því. ÍA vann Val 2-0 á Hlíðarenda í lokaumferðinni og Þórður hefði hæglega getað skorað þrennu í leiknum. Fyrst varði Bjarni Sigurðsson frá honum úr dauðafæri en Mihajlo Bibercic fylgdi á eftir og skoraði fyrra mark ÍA.
Bjarni varði síðan skot Þórðar á hreint ótrúlegan hátt og síðan komst Þórður eins nálægt því og hægt er að skora. Hann átti skot í innanverða stöng Valsmarksins af örstuttu færi, boltinnn rúllaði eftir marklínunni og þar náði Haraldur Ingólfsson að pota honum í markið. Þórður varð því að gera sér að góðu að jafna met Péturs og Guðmundar en 20. markið kom aldrei.

TENGT EFNI