Fotbolti.net
02.09.13 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Giroud í fremstu víglínu

Daniel Agger átti frábæran leik fyrir Liverpool.

Daniel Agger átti frábæran leik fyrir Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud skoraði þriðja mark sitt í jafnmörgum leikjum og tryggði Arsenal sigur á eyðsluseggjunum í Tottenham. Hann er í úrvalsliði vikunnar og fær félagsskap frá Alvaro Negredo, Hugo Lloris og Daniel Agger.

Úrvalsliðið að þessu sinni kemur frá Goal.com.


Flestir leikir helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni voru hreinlega leiðinlegir. Margir markverðir gerðu tilkall til að komast í úrvalsliðið en þrátt fyrir tap Tottenham kemst Lloris í liðið, klárlega besti leikmaður Spurs.

Pablo Zabaleta og Alvaro Negredo eru fulltrúar Manchester City í eftir sigur liðsins gegn Hull City tígrisdýrunum. Daniel Agger var maður leiksins og lagði upp sigurmarkið þegar Liverpool vann Manchester United og er hann í vörninni ásamt James Collins sem bjargaði West Ham frá niðurlægingu gegn Stoke City.

Leighton Baines spilaði vel um helgina en var óheppinn að fá ekki víti. Pablo Hernandez naumlega skákar Jermaine Pennant í baráttu um sæti í liðinu eftir að Swansea vann fyrsta deildarleik sinn á tímabilinu.

Nathan Redmond gerði gæfumuninn fyrir Norwich gegn Southampton. Mile Jedinak er á miðjunni en það eru hans verðlaun fyrir flotta frammistöðu í 3-1 sigri Crystal Palace gegn Sunderland.

Hatem Ben Arfa skoraði glæsilegt mark fyrir Newcastle þegar liðið vann nauðsynlegan sigur á Fulham og er hann í holunni fyrir aftan Alvaro Negredo og Olivier Giroud.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.