Tufa: Við náum að snúa leiknum
Auglýsing

Tufa var mjög svekktur eftir jafntefli gegn Íslandsmeisturunum í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er bara mjög svekktur fyrir hönd liðsins. Þriðja skiptið í sumar sem við náum topp frammistöðu á mótið toppliði og það fer svona, mögnuðu frammistaða hjá mínum mönnum,\" sagði Tufa þjálfari KA eftir 3-3 jafntefli við Val í dag. Þar sem KA komst tvívegis yfir og Valur jafnaði á dramatískan hátt á lokamínútunum.
KA snéri leiknum sér í hag eftir að Valur komst yfir á 14 mínútu.
„Við lentum 1-0 undir og missum tvo mikilvæga leikmenn í erfið meiðsli en erum að standa saman og náum að snúa leiknum. Við komust 3-2 yfir og grátlegt að vinna ekki þennan leik, mér fannst við eiga það skilið.\"
KA fékk á sig tvö mörk á lokamínútunum gegn Víking Reykjavík í síðustu umferð og fá svo aftur á sig mark á lokamínútunum í dag.
„Ég þarf að skoða leikinn aftur og finna litlu atriðin sem eru að klikka. Þetta var eins og ég segi grátlegt, því við vorum að spila mjög vel í dag. Við vorum ekki að verja forystuna í seinni hálfleik, við fórum ofar á völlinn og settum pressu á þá. Við vorum nálægt því að bæta við fjórða markinu. Ég er stoltur af liðinu í dag en mjög svekktur að þessi leikur vannst ekki.\"
Tveir lykilmenn KA fóru meiddir af velli, Bjarni og Ásgeir og báðir upp í sjúkrabíll.
„Staðan núna er slæm. Bjarni fékk mjög slæman heilahristing, við verðum bara að bíða og sjá hvernig það þróast á næstu dögum. Þetta er ekki alveg komið á hreint með Ásgeir en bendir til að þetta sé krossband, við verðum að krossa fingur og vona það besta.\"
KA á leik gegn Stjörnunni í næstu umferð.
„Við erum í fótboltanum til að spila svona leiki. KA er lið sem er ennþá nokkrum árum á eftir þessum liðum en leikurinn í dag sýnir hvað við erum að gera og hvað við erum búnir að gera.\"
Hægt er að horfa á viðtalið í heild hér að ofan.