Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 02. október 2020 18:40
Victor Pálsson
United hefur ekki rætt við Cavani
Markavél.
Markavél.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ekki boðið framherjanum Edinson Cavani samning samkvæmt heimildum Goal.com.

Cavani er að leita að félagi þessa stundina en hann er án félags eftir að hafa yfirgefið Paris Saint-Germain fyrr á þessu ári.

Talað var um að United væri að skoða það að fá Cavani sem raðaði inn mörkum fyrir PSG frá 2013 til ársins 2020.

Goal greinir þó frá því að United sé ekkert að flýta sér á markaðnum og er í raun óvíst hvort tilboð muni berast.

Fjölmörg lið hafa sýnt sóknarmanninum áhuga en Atletico Madrid hefur einnig verið nefnt til sögunnar.

Athugasemdir
banner
banner
banner