Fotbolti.net
20.07.26 - 21:46
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeildin: HK skoraði sex gegn Vestra

Lengjudeildin: HK skoraði sex gegn Vestra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
HK 6 - 2 Vestri
1-0 Dominik Radic ('25 )
2-0 Tumi Þorvarsson ('27 )
3-0 Viktor Helgi Benediktsson ('37 )
4-0 Karl Ágúst Karlsson ('44 )
4-1 Guðmundur Arnar Svavarsson ('67 )
5-1 Dominik Radic ('72 )
5-1 Gunnar Jónas Hauksson ('82 , misnotað víti)
5-2 Marinó Steinar Hagbarðsson ('85 )
6-2 Albert Ingi Jóhannsson ('93 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn: HK 6 - 2 Vestri
HK og Vestri áttust við í efri hluta Lengjudeildarinnar í kvöld og gerðu heimamenn í liði HK út um viðureignina í fyrri hálfleik.

HK var sterkari aðilinn og nýttu leikmenn liðsins færin sín afar vel. Dominik Radic skoraði fyrst með skalla eftir fyrirgjöf skömmu áður en Tumi Þorvarsson tvöfaldaði forystuna eftir langa sendingu upp völlinn.

Viktor Helgi Benediktsson skallaði svo hornspyrnu í netið áður en Karl Ágúst Karlsson setti fjórða markið eftir skyndisókn. Þaðan var því 4-0 í hálfleik.

HK var áfram sterkara liðið í síðari hálfleik en Guðmundur Arnar Svavarsson minnkaði muninn á 67. mínútu, eftir frábæran undirbúning frá Sergine Fall.

Fimm mínútum síðar bætti Dominik Radic fimmta marki HK við og klúðraði Gunnar Jónas Hauksson af vítaspyrnu á 82. mínútu. Þar hefði hann getað minnkað muninn aftur niður í þrjú mörk, eitthvað sem Marinó Steinar Hagbarðsson gerði á 85. mínútu en á þeim tímapunkti var engin raunhæf leið til baka.

Lokatölur urðu 6-2 eftir sjálfsmark í uppbótartíma og fer HK upp í þriðja sæti með sigrinum, þar sem liðið á 28 stig eftir 15 umferðir - þremur stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem er með leik til góða. Vestri er um miðja deild með 21 stig.
Lengjudeildin: HK skoraði sex gegn Vestra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin: HK skoraði sex gegn Vestra
Canon

Mynd: HK

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding19+2939
2Þróttur R.20+1837
3Fylkir20+1237
4HK20+1235
5Njarðvík20+1035
6Grótta19-127
7Vestri20-927
8Leiknir R.20025
9ÍR20-525
10Grindavík20-1121
11Völsungur20-1620
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.