Fotbolti.net
20.07.26 - 20:46
Ívan Guðjón Baldursson

Rannsaka hegðun Argentínumanna eftir lokaflautið

Rannsaka hegðun Argentínumanna eftir lokaflautið
Canon

Mynd: EPA

Alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur staðfest að það muni rannsaka hegðun argentínska landsliðsins eftir tap gegn Spáni í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í gærkvöldi.
Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"
TENGT EFNI

Otamendi og Rodri tókust á - „Varst að grenja alla vikuna"

Það brutust út slagsmál meðal leikmanna eftir lokaflautið þar sem nokkrir leikmenn argentínska landsliðsins sýndu einstaklega ljóta hegðun. Nahuel Molina er meðal leikmanna sem geta búist við leikbanni en Thiago Almada, Leandro Paredes og aðstoðarþjálfarinn Roberto Ayala virtust einnig slá frá sér.

Líklegt er að argentínska fótboltasambandið verði sektað vegna málsins og gætu bæði leikmenn og starfsmenn landsliðsins verið dæmdir í bann.

FIFA er nú þegar með argentínska landsliðið til rannsóknar eftir að leikmenn liðsins héldu uppi borða með pólitískum skilaboðum í fagnaðarlátunum eftir sigurinn gegn Englandi í undanúrslitum. Á borðanum stóð að Falkland-eyjar væru argentínskar.

Slagsmál brutust út eftir lokaflautið - „Paredes hefur verið til skammar"
TENGT EFNI

Slagsmál brutust út eftir lokaflautið - „Paredes hefur verið til skammar"

Rannsaka hegðun Argentínumanna eftir lokaflautið
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.