Fotbolti.net
20.07.26 - 22:01
Ívan Guðjón Baldursson

Romero hunsaði Trump - Yamal og Messi knúsuðust

Romero hunsaði Trump - Yamal og Messi knúsuðust
Canon

Mynd: EPA

Það var nóg um að vera eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í gærkvöldi þegar Spánn vann verðskuldaðan sigur á Argentínu.
Myndbönd: Trump þvældist fyrir í fögnuðinum
TENGT EFNI

Myndbönd: Trump þvældist fyrir í fögnuðinum

Það var ýmislegt sem gekk á og tók Donald Trump Bandaríkjaforseti stóran hluta athyglinnar til sín. Það eru mjög skiptar skoðanir á forsetanum og eru nokkrir leikmenn sem hafa mikla andúð á honum.

Cristian Romero er fyrirliði Tottenham og virðist tilheyra flokki þeirra sem hafa óbeit á Trump. Hann var á sínum stað í byrjunarliði Argentínu sem tapaði úrslitaleiknum og fékk því afhentan silfurverðlaunapening eftir lokaflautið.

Trump sá um að gefa leikmönnum verðlaunapeninga ásamt Gianni Infantino, forseta FIFA. Þegar röðin var komin að Romero gætti hann þess að fá verðlaunapening frá Infantino á meðan hann gjörsamlega hunsaði Trump.

Romero gekk upprunalega einnig framhjá Claudia Sheinbaum án þess að taka í höndina á henni, en snéri svo við til að taka í höndina á henni án þess að líta til Trump.

Argentínska goðsögnin Lionel Messi sat sár eftir á vellinum eftir lokaflautið en Lamine Yamal hughreysti hann. Þessi fallega stund náðist á myndband en Yamal hefur að mörgu leyti verið að feta í fótspor Messi á upphafi ferilsins.

Þegar Messi baðaði sex mánaða Yamal
TENGT EFNI

Þegar Messi baðaði sex mánaða Yamal







Romero completely ignored Trump
by
u/lotusguild in
soccer


Romero hunsaði Trump - Yamal og Messi knúsuðust
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.