Ísak Bergmann um umdeild ummæli: Getum ekki verið að fara á Twitter eftir alla leiki


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísak Bergmann Jóhannesson landsliðsmaður fékk töluverða gagnrýni eftir viðtal sem hann gaf Fótbolta.net, eftir jafnteflið gegn Eistlandi á dögunum. Hann svaraði fyrir það á fréttamannafundi í dag og sagði að ummæli hans beindust ekki að stuðningsmönnum.

Ísak Bergmann: Skil pirringinn en mér gæti ekki verið meira sama
„Þetta var ekki í átt að okkar stuðningsmönnum. Okkar stuðningsmenn, við vitum hverjir þeir eru en við getum ekki verið að eyða orku í það sem fólk er að segja á netinu eða á Twitter. Við erum bara inn í okkar búbblu, og eins og Arnar segir er þetta langhlaup, við getum ekki verið að fara á Twitter eftir hvern einasta leik og skoðað hvað fólk er að segja. Við erum einbeittir að verkefninu og erum að undirbúa næsta leik gegn Búlgaríu. Við erum ‘locked in’," sagði Ísak.
Ísak talaði einnig um breytinguna á landsleikjagluggunum og hvernig það er að vera með fjóra leiki á svona stuttu millibili. Hann sjálfur er hrifinn.
„Mér finnst þetta persónulega mjög gaman, því þetta eru skemmtilegustu leikirnir sem maður spilar með landsliðinu. Þessi hópur, við erum allir gríðarlega góðir vinir og elskum að vera í þessu umhverfi. Þannig persónulega séð finnst mér þetta geðveikt. Auðvitað þarf maður að hugsa vel um sig milli leikja og vera í endurheimt. Mikið búið að gerast, við missum Albert í fyrsta leiknum og núna er Kristall dottinn út. Þannig þetta er lengri gluggi sem þjálfarateymið og leikmenn þurfa að aðlagast og kannski breyta smá skipulagi, en þetta er bara skemmtilegt."
