Fotbolti.net
02.12.13 - 09:25
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Rooney í fremstu víglínu

Curtis Davies átti frábæran leik gegn Liverpool.

Curtis Davies átti frábæran leik gegn Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Aaron Ramsey átti magnaðan leik fyrir Arsenal gegn Cardiff en Arsenal heldur áfram að gera frábæra hluti í ensku úrvalsdeildinni og trónir á toppnum.

Liverpool tapaði mjög óvænt fyrir Hull og Manchester United mistókst að saxa á toppliðin.
Það er komið að úrvalsliði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni en Garth Crooks hjá BBC sér um valið.



Markvörður - Wojciech Szczesny (Arsenal)
Hélt hreinu um helgina með frammistöðu sem getur skilað titlum. Szczesny var ekki í yfirvinnu gegn Cardiff en steig ekki feilspor.

Varnarmaður - Bryan Oviedo (Everton)
Það er stórt skarð að fylla þegar Leighton Baines vantar, einn besti bakvörður Englands. En Oviedo var frábær í vörn og sókn. Skoraði verðskuldað mark.

Varnarmaður - Curtis Davies (Hull)
Það er ekki oft sem Luis Suarez fær varla færi. Davies spilaði frábærlega og hélt þeim úrúgvæska algjörlega niðri.

Varnarmaður - John Terry (Chelsea)
Algjör stríðsmaður. Kom Chelsea yfir gegn Southampton með marki sem reyndist vendipunktur leiksins.

Varnarmaður - Kyle Walker (Tottenham)
Skoraði og var með stöðugar áætlunarferðir upp vænginn. Markið hans var fyrsta úrvalsdeildarmark hans síðan í apríl 2012.

Miðjumaður - Sandro (Tottenham)
Ein af ástæðum þess að Spurs fekk stig gegn Englandsmeisturunum.

Miðjumaður - Aaron Ramsey (Arsenal)
Skoraði tvívegis gegn fyrrum félagi sínu og fagnaði ekki. Stuðningsmenn Cardiff klöppuðu fyrir leikmanninum.

Miðjumaður - Gerard Deulofeu (Everton)
Þessi ungi leikmaður Börsunga kom inn í byrjunarlið Everton og lék fantavel. Er hjá þeim bláu á lánssamningi.

Miðjumaður - Mohamed Diame (West Ham)
Átti frábæran leik í 3-0 sigri gegn Fulham. Ein stærsta ástæðan fyrir því að Martin Jol varð svo atvinnuaus?

Miðjumaður - Samir Nasri (Man City)
Sýndi loks sitt rétta andlit með tveimur mörkum gegn Swansea. Leikmaður sem þurfti að stíga upp.

Framherji - Wayne Rooney (Man Utd)
Rooney mun gera tilkall til þess að vera leikmaður tímabilsins ef hann heldur áfram á þessari braut.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
 Gerard Deulofeu.

Gerard Deulofeu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.