Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. janúar 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbeumo fagnaði að hætti Lebron James sem á hlut í Liverpool
Bryan Mbeumo í leiknum í gær
Bryan Mbeumo í leiknum í gær
Mynd: EPA

Brentford vann Liverpool 3-1 í ensku úrvaldsdeildinni í gær en Bryan Mbeumo skoraði síðasta markið eftir að hafa farið ansi illa með Ibrahima Konate.


Það hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir leikinn að Mbeumo fagnaði eins og körfuboltamaðurinn LeBron James er þekktur fyrir að gera en LeBron á hlut í Liverpool.

Eigendur Liverpool hafa greint frá áhuga á að selja félagið svo spurning hvort LeBron verði hluti af Liverpool fjölskyldunni eitthvað mikið lengur.

Það hefur ekki gengið sem skyldi hjá Liverpool á þessari leiktíð og er talið að félagið sé til sölu til að aðilar geti keypt það sem gætu hjálpað betur til á leikmannamarkaðnum.

Markið og fagnið má sjá hér


Athugasemdir
banner
banner