Fotbolti.net
02.10.26 - 15:17
Haraldur Örn Haraldsson

Arnar ekki hugsað út í landsleikjametið - „Búinn að steingleyma því"

Aron Einar Gunnarsson á bekknum.

Aron Einar Gunnarsson á bekknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip

Aron Einar Gunnarsson landsliðsmaður er nálægt því að verða leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins. Hann er með 110 landsleiki en Birkir Bjarnason er með metið með sína 113 landsleiki. Aron hefði því getað náð metinu með þátttöku í öllum fjórum leikjunum í þessum landsleikjaglugga.


Hann hefur hins vegar ekkert komið við sögu, og hefur gefið út að þetta mót verður hans síðasta með landsliðinu. Hann þarf þá að koma við sögu í báðum leikjunum sem eftir er í þessum glugga og í báðum leikjunum sem fara fram í nóvember.

Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?
TENGT EFNI

Aron ekki komið við sögu í glugganum - Mun hann ná leikjametinu?

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari, segist ekki hafa hugsað mikið út í þetta en væri hrifinn af því ef það myndi gerast.

„Nei eiginlega ekki (hvort hann hafi haft metið bak við eyrað), ég var eiginlega búinn að steingleyma því. Þetta snýst ekkert um það, ég skil mjög vel að það væri hrikalega stór stund ef þetta myndi gerast í þessum glugga og svo út nóvember. En svoleiðis atriði má bara ekki hafa áhrif á dómgreind okkar sem erum í þjálfarateyminu. Það er alls konar atriði sem skipta meira máli, en það væri frábært. Ég er mjög mikill rómantíkus í fóbolta, það væri geggjað ef hann myndi ná þessu leikjameti og við að fagna sigri í riðlinum í nóvember eftir leik á móti Lúxemborg. En það veltur bara á ýmsu. Það er liðsheildin, og hvernig við förum að því að ná árangri sem skiptir öllu máli," segir Arnar.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.