Fotbolti.net
04.02.13 - 12:00
Fótbolti.net
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Tveir frá Liverpool og QPR

Julio Cesar hefur verið magnaður á þessu tímabili.

Julio Cesar hefur verið magnaður á þessu tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

QPR og Liverpool eiga bæði tvo fulltrúa í liði vikunnar á Englandi að þessu sinni en um er að ræða val Garth Crooks á BBC.

Bæði þessi lið gerðu jafntefli en eiga þrátt fyrir það tvo fulltrúa í liðinu. West Ham, Reading, Newcastle, Chelsea, Tottenham, Manchester United og Aston Villa eiga einnig sinn fulltrúa.


Markvörður: Julio Cesar (QPR)
Cesar átti enn einn stórleikinn með QPR þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Norwich um helgina.

Varnarmaður: Christopher Samba (QPR)
Samba var öflugur í sínum fyrsta leik með QPR.

Varnarmaður: Jamie Carragher (Liverpool)
Jamie Carragher er kominn aftur í byrjunarlið Liverpool og hann stóð vaktina vel gegn Manchester City.

Varnarmaður: Winston Reid (West Ham)
Reid hefur verið frábær á tímabilinu og hann skilaði fínu starfi í sigrinum á Swansea um helgina.

Miðjumaður: Jimmy Kebe (Reading)
Kebe skoraði bæði mörk Reading í sigri á Sunderland.

Miðjumaður: Juan Mata (Chelsea)
Þrátt fyrir að vera í tapliði gegn Newcastle þá skoraði Mata frábært mark í leiknum.

Miðjumaður: Steven Gerrard (Liverpool)
Gerrard skoraði einnig frábært mark fyrir Liverpool um helgina.

Miðjumaður: Gareth Bale (Tottenham)
Bale var frábær í sigri Tottenham á WBA og kórónaði frammistöðu sína með sigurmarki leiksins.

Miðjumaður: Moussa Sissoko (Newcastle)
Sissoko stimplaði sig inn á St James Park með tveimur mörkum gegn Chelsea.

Framherji: Wayne Rooney (Manchester United)
Rooney var hetja Manchester United gegn Fulham.

Framherij: Christian Benteke (Aston Villa)
Belginn hefur verið öflugur í liði Aston Villa í vetur og um helgina skoraði hann tvívegis.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Steven Gerrard er í liði helgarinnar.

Steven Gerrard er í liði helgarinnar.

Canon

Mynd: Getty Images

Moussa Sissoko skoraði tvö.

Moussa Sissoko skoraði tvö.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.