Fotbolti.net
04.02.14 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Hazard í liðinu

Hazard er í liðinu en fleiri Chelsea-menn voru nálægt því að komast í liðið.

Hazard er í liðinu en fleiri Chelsea-menn voru nálægt því að komast í liðið.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalslið vikunnar að þessu sinni kemur frá Goal.com.

Það er Domino\'s sem býður upp á úrvalsliðið en við hvetjum fólk til að skella sér á hið ómótstæðilega þriðjudagstilboð.


Í markinu stendur David Marshall hjá Cardiff en liðið vann mikilvægan sigur gegn Norwich sem einnig er í fallbaráttu. Í vörninni eru Curtis Davies hjá Hull, Ryan Shawcross hjá Stoke og James Tomkins sem fór á kostum í 2-0 sigri West Ham gegn Swansea.

Eden Hazard var enn og aftur stjarna sýningarinnar þegar Chelsea sótti þrjú stig til Manchester City. Ramires og Nemanja Matic voru nálægt því að komast í liðið einnig.

Alex Oxlade-Chamberlain sá til þess að Arsenal hélt sæti sínu á toppi deildarinnar en hann skoraði tvívegis gegn Crystal Palace. Jack Colback var meðal markaskorara í 3-0 sigri Sunderland á Newcastle.

Stoke vann óvæntan sigur gegn Manchester United á laugardag þar sem Charlie Adam skoraði í tvígang. Wilfried Zaha lét strax að sér kveða hjá Cardiff og hjálpaði liðinu að leggja Norwich.

Í fremstu víglínu eru Jay Rodriguez sem skoraði magnað mark í sigri gegn Fulham og með honum er Fabio Borini hjá Sunderland en liðsfélagihans, Jozy Altidore, bankaði á dyrnar rétt eins og Andy Carroll.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.