„Við erum búnar að vera með fínar æfingar og þetta er frábær borg," sagði landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir við Fótbolta.net fyrir síðustu æfinguna fyrir leikinn gegn Úkraínu á morgun. Leikurinn er afar mikilvægur hluti af undankeppninni fyrir HM sem fer fram á næsta ári.
Ísland vann fyrri leikinn 1-0 á Laugardalsvelli en leikurinn á morgun verður væntanlega öðruvísi þar sem það dugir ekkert annað en sigur fyrir Úkraínu.
„Já, ég býst við því að þær verði agressívari og beinskeyttari. Þetta er auðvitað úrslitaleikur og bæði lið vita það. Þær verða að vinna þennan leik og ég býst við þeim í aðeins meira 'fuck it mode'," sagði Glódís á góðri íslensku.
Amir stóð upp úr
Það er óhætt að segja að stemningin í hópnum sé góð en í gær var haldin nýliðavígsla þar sem þjálfararnir tóku líka þátt.
„Það var ógeðslega gaman," sagði Glódís. „Öll atriðin voru upp á tíu. Þetta var fjölbreytt og alls konar."
Þetta var engin nýliðavígsla þar sem um hæfileikakeppni var að ræða. Það voru því alls konar atriði en eftir smá umhugsun opinberaði Glódís það sem henni þótti skemmtilegasta atriðið.
„Við vorum með galdra, uppistand, landafræði og alls konar," sagði Glódís.
„Mér fannst Amir (Mehica, markvarðarþjálfari liðsins) ógeðslega fyndinn. Við erum með þjálfarana líka. Hann stóð upp úr, fór bara að bulla á bosnísku held og það var ógeðslega fyndið. Mér fannst þetta geggjað."
Viðtalið er í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
























