Fotbolti.net
25.07.26 - 19:31
Snæbjört Pálsdóttir

„Steini sagði mér að taka eitt skref aftur“ – Natasha gulltryggði sætið í úrslitum Mjólkubikarsins

Auglýsing
Natasha skoraði þriðja mark Grindavíkur/Njarðvíkur í 3-0 sigri á Fram og gulltryggði liðið áfram í Úrslit Mjólkubikarsins

Natasha skoraði þriðja mark Grindavíkur/Njarðvíkur í 3-0 sigri á Fram og gulltryggði liðið áfram í Úrslit Mjólkubikarsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn

Grindavík/Njarðvík tryggði sér sæti í úrslitum Mjólkurbikars kvenna með sannfærandi 3-0 sigri á Fram í undanúrslitunum í dag.

Natasha skoraði þriðja mark Grindavíkur/Njarðvíkur og innsiglaði sigurinn. Hún var að vonum í skýjunum eftir leik og stolt af frammistöðu liðsins.

Lestu um leikinn: Fram 0 - 3 Grindavík/Njarðvík

„Ég er bara mjög þakklát og ánægð. Það eru fullt af tilfinningum sem koma upp, en fyrst og fremst er ég stolt af þessu liði,“ sagði Natasha í samtali við Fótbolta.net eftir leik.

„Ég er stolt af því hvernig við spiluðum, hversu grimmar við vorum og hversu duglegar við vorum að spila okkar leik. Ég er mjög ánægð með þetta.“


Natasha hafði beðið eftir markinu undanfarið og viðurkenndi að það hefði verið einstaklega sætt að koma boltanum loksins í netið.

„Það var rosalega næs. Ég held að ég hafi verið búin að banka á dyrnar í mörgum leikjum og loksins fór boltinn í netið. Það var mjög góð tilfinning.“


Markið kom eftir hornspyrnu frá Hildi Katrínu Snorradóttur og Natasha greindi frá því að útfærslan hefði verið ákveðin rétt áður en spyrnan var tekin.

„Ég verð að þakka Steina fyrir þetta. Hann sagði mér að taka eitt skref aftur og bað Hildi um að senda boltann á hausinn á mér. Hún gerði það og það virkaði mjög vel.“


Hildur Katrín var mjög áberandi í leiknum og átti frábær áhlaup á vörn Fram. Natasha var að vonum ánægð með liðsfélaga sinn.

„Hún er bara geggjuð, eins og allir sáu í dag. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um hana.“

„Hún mætir fyrst á æfingar með bros á vör, er alltaf tilbúin að vinna og sýna fólki hversu góð hún er.“


Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti í úrslitaleiknum. Liðin mættust nýlega í deildinni þar sem Grindavík/Njarðvík hafði betur 4-2, en Natasha býst við erfiðum og skemmtilegum úrslitaleik.

„Ég er mjög spennt. Þróttur er mjög gott lið og það hafa orðið breytingar hjá þeim. Við höfum líka breyst mikið.“

„Ég held að þetta verði mjög skemmtilegur leikur á Laugardalsvelli.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.