Fotbolti.net
26.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Æfingaleikir: LIverpool vann Sunderland og Wrexham lagði Leeds

Dominik Szoboszlai

Dominik Szoboszlai

Canon

Mynd: EPA

Liverpool og Sunderland mættust á æfingamóti í Nashville í Bandaríkjunum í nótt.

Hinn 19 ára gamli Kieran Morrison kom Liverpool yfir en Enzo Le Fee jafnaði metin með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn og staðan var 1-1 í hálfleik.
Timur Tuterov kom síðan Sunderland yfir en Dominik Szoboszlai jafnaði metin stuttu síðar með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn.

Federico Chiesa kom Liverpool yfir og hinn tvítugi Lewis Koumas innsiglaði sigurinn. Það eru fáir aðalliðsmenn Liverpool með í þessari ferð en leikmenn á borð við Jeremie Frimpong, Kostas Tsimikas, Curis Jones, Harvey Elliott, og Rio Ngumoah komu við sögu ásamt Szoboszlai og Chiesa.

Þá var Joe Gomez í byrjunarliðinu en hann þurfti að fara af velli vegna meiðsla eftir 10 mínútna leik.

Þá vann Wrexham 3-2 sigur á Leeds í sama móti. Næstu leikir eru Liverpool gegn Wrexham 29. júlí og Sunderland gegn Leeds 30. júlí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.