Fotbolti.net
25.07.26 - 21:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Staðfestir viðræður um Romero

Staðfestir viðræður um Romero
Canon

Mynd: EPA

Inter Milan vill kaupa Cristian Romero, fyrirliða Tottenham, í sumar. Piero Ausilio, yfirmaður íþróttamála hjá Inter, staðfestir viðræður við enska félagið.

Argentíski varnarmaðurinn hefur spilað 156 leiki og skorað 12 mörk fyrir Tottenham síðan hann gekk til liðs við félagið frá Atalanta árið 2021.
„Við höfum áhuga. Við höfum talað við umboðsmanninn hans og Tottenham. Við sjáum til hvað gerist," sagði Ausilio.

Sky á Ítalíu greinir frá því að Inter hafi einnig áhuga á John Stones sem yfirgaf Man City í sumar. Hann er einnig á óskalista Arsenal og Chelsea.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.