25.07.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gummi Magg: Fór á mína fyrstu æfingu fyrir 30 árum í Ólafsvík
Auglýsing

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Mynd: Víkingur Ólafsvík
„Þeir gerast ekki sætari en þetta sigrarnir," sagði Guðmundur Magnússon, framherji Víkings Ólafsvíkur, eftir sigur liðsins á Dalvík/Reyni í 2. deild í dag.
Víkingur var manni færri nær allan seinni hálfleikinn og sigurmarkið kom eftir rúmlega klukkutíma leik.

Lestu um leikinn: Dalvík/Reynir 0 - 1 Víkingur Ó.
„Þeir hafa sýnt í undanförnum leikjum að þeir kunna að verjast. Það hefur vantað aðeins upp á flæðið í sóknarleiknum, við fengum ágætis færi í dag. Þetta var týpískur 1-0 leikur, barningur og þeir lágu á okkur í lokin. Þessir hafsentar elska að verjast."
Gummi gekk til liðs við Víking frá Njarðvík í sumar en þetta er í þriðja sinn sem hann er á mála hjá félaginu.
„Það er alltaf ljúft. Fólkið mitt og ræturnar eru hérna. Ég byrjaði á minni fyrstu fótboltaæfingu fyrir 30 árum síðan í Ólafsvík. Þetta er ágætis saga."
„Ég ætlaði mér hluti með Njarðvík. Fótboltinn er stundum þannig að þetta þarf að falla fyrir þig, það var ekki að gera það. Eins og Davíð var búinn að tala um kom ég seint inn í þetta og komst aldrei í það stand sem ég vildi komast í. Svo opnar glugginn og ég togna rétt fyrir gluggaopnun. Er að koma mér að stað og spilaði 20 mínútum meira í dag en í síðustu viku, verkjalaus. Það er langt síðan maður hefur spilað fótbolta og það er munur á því að vera í standi og spilstandi."
Hann fékk gott færi til að skora í dag.
„Það er langt síðan maður hefur komist í svona færi. Völlurinn svolítið þurr, boltinn skoppaði ekki alveg nógu vel fyrir mig til að stýra honum. En svo kemur næsta færi og hann er inni."