Fotbolti.net
25.07.26 - 14:13
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool afþakkaði boðið

Liverpool hafnaði því að fá Vini Jr

Liverpool hafnaði því að fá Vini Jr

Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur afþakkað að fá Vini Jr frá Real Madrid en þetta segir blaðamaðurinn Ben Jacobs á X.
Arsenal kannar möguleikann á að fá Vini Jr frá Real Madrid en engar formlegar viðræður hafa enn átt sér stað á milli félaganna.

Manchester City hefur einnig sýnt Brasilíumanninum áhuga, auk félaga í Sádi-Arabíu. Ben Jacobs segir að umboðsmenn Vini Jr hjá Roc Nation hafi jafnframt boðið Liverpool þann kost að kaupa leikmanninn. Liverpool afþakkaði boðið og gerði umboðsmönnunum ljóst að hann væri ekki inni í myndinni hjá félaginu.

Það er í forgangi hjá Liverpool að sækja hægri kantmann og hefur félagið hvorki átt í viðræðum né öðrum samskiptum við Real Madrid vegna Vini Jr.

Brasilíumaðurinn er 26 ára gamall og samningur hans rennur út næsta sumar. Real Madrid er sagt reiðubúið að selja hann í þessum félagaskiptaglugga frekar en að eiga á hættu að missa hann án greiðslu að ári.

Real Madrid hefur átt í viðræðum við umboðsmenn hans um nýjan samning síðasta eina og hálfa árið en sífellt minni líkur eru taldar á að hann framlengi dvöl sína hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.