Fotbolti.net
26.07.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Rashford myndi gera mikið gagn hjá Liverpool"

„Rashford myndi gera mikið gagn hjá Liverpool"
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Marcus Rashford hjá Man Utd er í mikilli óvissu en hann mun að öllum líkindum yfirgefa félagið í sumar.

Hann var á láni hjá Barcelona á síðustu leiktíð með kaupmöguleika sem spænska félagið nýtti sér ekki og keypti Anthony Gordon frá Newcastle í staðin.
Rashford var með ákvæði í samningnum sem gerði félögum, öðrum en erkifjendum Man Utd í Liverpool og Man City, kleift að kaupa hann fyrir 40 milljónir punda en ákvæðið er runnið út.

Claude Makelele, fyrrum leikmaður Chelsea, sagði í að hann gæti nýst Liverpool vel.

„Ef hann getur ekki verið áfram hjá Barcelona og hann ákveður að snúa aftur í úrvalsdeildina myndi hann gera mikið gagn hjá Liverpool," sagði Makelele.

Spánverjinn Fernando Morientes, fyrrum leikmaður Liveprool, tók undir með Makelele.

„Ég yrði ekki hissa. Það gæti verið góður staður fyrir hann að sýna sig. Hann sýndi í fyrra á ákveðnum augnablikum að hann er frábær leikmaður. Fyrst hann hefur spilað fyrir Man Utd, ég veit ekki hvort það gefi honum enn meiri löngun í að sanna hversu góður hann er."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.