25.07.26 - 22:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hörður Snævar: Sagði honum mögulega að halda kjafti
Auglýsing

Mynd: Dalvík/Reynir

Mynd: Dalvík/Reynir
Fótbolti.net ræddi við Hörð Snævar Jónsson, þjálfara Dalvíkur/Reynis, eftir tap gegn Víkingi Ó. í 2. deild í dag. Þetta var þriðja tap liðsins í röð.
„Mér finnst leikurinn jafn, þeir voru aðeins ofan á í fyrri hálfleik. Svo fannst mér við koma sterkir inn í seinni hálfelikinn 11 á móti 11. Þeir fá þetta rauða spjald og við höldum áfram en svo gefum við þeim mark. Það vantaði talsvert mikið í sóknarleikinn," sagði Hörður.

Lestu um leikinn: Dalvík/Reynir 0 - 1 Víkingur Ó.
„Við ræðum betur saman á morgun og þá kemur í ljós úr hverju við þjálfararnir og leikmennirnir eru gerðir því við erum komnir í holu. Þá kemur í ljóst hverslags lið þetta er, hvort menn séu tilbúnir að grafa djúpt til að komast út úr þessu. Við höfum gert það áður í sumar."
Það urðu einhver orðaskipti milli bekkjana undir lokin.
„Þetta var ekkert alvarlegt. Sjúkraþjálfarinn hjá okkur æsti sig aðeins. Mér fannst Tomsz Luba (þjálfari Víkings) full hvass í svörum miðað við hvernig aðstoðarmenn og teymi höfðu verið að ibba gogg á bekknum. Ég held að ég hafi mögulega sagt honum að halda kjafti, það fór ekkert lengra en það," sagði Hörður.