Fotbolti.net
25.07.26 - 17:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fer Dembele til Sádi-Arabíu?

Fer Dembele til Sádi-Arabíu?
Canon

Mynd: EPA

Sádi arabíska félagið Al Hilal er stórhuga á markaðnum eftir að hafa nælt í Crysencio Summerville frá West Ham. Belgíski blaðamaðurinn Sacha Tavolieri segir frá því að félagið ætli sér að fá Ousmane Dembele, leikmann PSG.
Samkvæmt heimildum Tavolieri hefur Al Hilal sett sig í samband við umboðsmannateymi Frakkans.

Dembele hefur verið stórkostlegur undanfarin ár en PSG vann Meistaradeildina síðustu tvö tímabil og Dembele vann Ballon d'Or í fyrra. Þá skoraði hann sex mörk og lagði upp tvö í átta leikjum með franska landsliðinu á HM í sumar.

PSG vill endursemja við hann en núgildandi samningur hans við félagið rennur út árið 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.