„Í dag voru kannski tveir yrðlingar að stýra“ - Refurinn bíður á Laugardalsvelli

Gylfi, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur var ánægður með sínar konur sem tryggðu sig áfram í úrslit Mjólkubikarsins með 0-3 sigri á Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur var ánægður með sínar konur sem tryggðu sig áfram í úrslit Mjólkubikarsins með 0-3 sigri á Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík er komið í úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sannfærandi 0-3 sigur gegn Fram á Lambhagavellin í undanúrslitunum í dag.
Gylfi, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var fullur af stolti eftir leikinn og sagði tilfinninguna við að vera kominn í úrslit nær ólýsanlega.
„Hún er ótrúlega góð, eiginlega hálfólýsanleg. Ég er fullur af gleði, stolti og þakklæti fyrir að fá að tilheyra þessu magnaða liði,“ sagði Gylfi í samtali við Fótbolta.net.
„Við nýttum stöðurnar ekkert frábærlega, en ég ætla ekki að eyða þessu kvöldi í að kvarta yfir því. Ég er mjög ánægður heilt yfir og mér finnst þær verðskulda að vera komnar í bikarúrslit.“
Þrátt fyrir 3-0 lokatölur fannst Gylfa munurinn á liðunum ekki jafn mikill og úrslitin gáfu til kynna.
„Ég upplifði okkur ekki með neina yfirburði. Mér fannst þetta hörkuleikur og mikil barátta. Þetta eru lið sem spila mjög ólíkan fótbolta.“
„Við skorum úr föstu leikatriði og eftir tvö skot fyrir utan teig. Það er ekki eins og við séum vaðandi í færum. Þetta voru mikilvæg einstaklingsgæði í bland við liðsheild.“
Grindavík/Njarðvík var spáð erfiðu sumri eftir að liðið vann sér sæti í Bestu deildinni, en er nú komið alla leið í úrslit bikarkeppninnar. Gylfi sagðist þó ekki hafa miklar áhyggjur af áliti fólks utan liðsins.
„Þau geta alveg haft rétt fyrir sér í haust. Við getum fallið úr þessari deild og tapað bikarúrslitunum. Við getum líka unnið þau.“
„Mér er innilega sama hvað öðru fólki finnst um okkur. Við erum bara í okkar búbblu að gera okkar og trúum á það sem við erum að gera.“
Gylfi sagði árangurinn vera afrakstur ákveðins leikstíls og vinnu liðsins, en benti einnig á að tilviljanir væru stór hluti af fótboltanum.
„Við leggjum upp með ákveðinn leikstíl og ákveðin plön, en svo skýturðu fyrir utan teig, boltinn fer í bakið á varnarmanni og inn.“
„Það skilaði okkur í bikarúrslit. Það er kannski ástæðan fyrir því að við elskum þennan leik.“
Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Liðin mættust nýlega í deildinni þar sem Grindavík/Njarðvík hafði betur, 4-2. Gylfa hlakkar til leiksins og vísaði í ummæli eftir hinn undanúrslitaleikinn, þar sem þjálfararnir voru kallaðir tveir refir.
„Það var rætt um það í gær að tveir refir væru að stýra liðunum. Í dag voru kannski tveir yrðlingar að stýra sínum liðum,“ sagði Gylfi.
„Það verður gaman fyrir mig að mæta ref í bikarúrslitum á Laugardalsvelli. Þróttur mun gera okkur lífið leitt, þetta er hörkulið.“
„Vonandi verða þetta tvö frábær lið sem mætast í skemmtilegum úrslitaleik.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.





