25.07.26 - 16:26
Brynjar Ingi Erluson
Víkingur kaupir Telmu frá Rangers (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Telma Ívarsdóttir er gengin í raðir Víkings frá skoska félaginu Rangers, en Skotarnir segja frá þessu á heimasíðu sinni í dag.
Telma gekk til liðs við Rangers frá Breiðabliki í janúar 2025 og hefur verið á mála hjá skoska félaginu síðan.
Hún sneri aftur í Kópavoginn á láni síðasta sumar og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Breiðabliki. Telma fór aftur til Rangers um mitt sumar en gekk til liðs við Inter á láni eftir áramót, þar sem hún var Cecilíu Rán Rúnarsdóttur til halds og trausts.
Telma sneri aftur til Rangers eftir tímabilið en er nú komin heim til Íslands á ný. Hún hefur samið við Víking sem greiðir óuppgefið kaupverð fyrir markvörðinn.
Víkingur er á botni Bestu deildarinnar með tíu stig eftir tólf umferðir.