Fotbolti.net
04.11.13 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír frá United og City

Van Persie og Rooney eru báðir í liðinu.

Van Persie og Rooney eru báðir í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United og Manchester City eiga flesta fulltrúa í liði vikunnar hjá Garth Crooks á BBC.

United á þrjá fulltrúa eftir 3-1 útisigurinn á Fulham og City á jafnmarga eftir 7-0 burstið á Norwich. Þá á Arsenal tvo fulltrúa eftir 2-0 sigurinn á Liverpool.

Hér að neðan má sjá liðið sem er ansi sókndjarft að þessu sinni.


Markvörður: Asmir Begovic (Stoke)
Begovic skoraði mark Stoke gegn Southampton um helgina á ótrúlegan hátt og var þess fyrir utan öruggur á milli stanganna.

Varnarmaður: Matieu Debuchy (Newcastle)
Debuchy hélt stjörnum Chelsea niðri í 2-0 sigri Newcastle í fyrradag. Góður leikur hjá franska bakverðinum.

Varnarmaður: Steven Caulker (Cardiff)
Caulker er í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Cardiff eftir að hafa skorað sigurmarkið í nágrannaslagnum gegn Swansea í gær.

Varnarmaður: Per Mertesacker (Arsenal)
Aðra vikuna í röð er Mertesacker í liðinu en hann var gífurlega öflugur í 2-0 sigri Arsenal á Liverpool.

Varnarmaður: Patrice Evra (Manchester United)
Patrice Evra hefur leikið mjög vel að undanförnu eftir að slúðursögur sögðu að David Moyes ætlaði að fá Leighton Baines í vinstri bakvörðinn hjá United.

Miðjumaður: Aaron Ramsey (Arsenal)
Ramsey heldur áfram að slá í gegn á þessu tímabili en hann skoraði frábært mark í sigrinum á Liverpool og er nú kominn með tíu mörk í öllum keppnum.

Miðjumaður: Yaya Toure (Manchester City)
Leikmenn Norwich réðu ekkert við Toure í 7-0 sigri City á laugardag.

Miðjumaður: Sergio Aguero (Manchester City)
Aguero er troðið á miðjuna til að koma öllum framherjunum fyrir í liðið. Var frábær í 7-0 sigri City á Norwich þar sem hann skoraði og lagði upp mörk.

Framherji: Wayne Rooney (Manchester United)
Rooney skoraði og átti frábæran leik í öruggum útisigri Manchester United gegn Fulham.

Framherji: David Silva (Manchester City)
Silva sýndi sínar bestu hliðar í burstinu gegn Norwich og stuðningsmenn Manchester City vona að hann sé kominn í gang á nýjan leik.

Framherji: Robin van Persie (Manchester United)
Van Persie skilaði marki og var öflugur í liði United gegn Fulham.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Yaya Toure er á miðjunni.

Yaya Toure er á miðjunni.

Canon

Mynd: Getty Images

Aaron Ramsey er í liðinu.

Aaron Ramsey er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.