Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 04. desember 2021 08:30
Victor Pálsson
Lampard fékk skilaboð frá Silva eftir úrslitaleikinn
Mynd: EPA
Frank Lampard, fyrrum stjóri Chelsea, fékk skilaboð frá Brasilíumanninum Thiago Silva í maí eftir að Chelsea fagnaði sigri í Meistaradeild Evrópu.

Chelsea byrjaði það tímabil undir stjórn Lampard en eftir slæmt gengi í deildinni var Englendingurinn látinn fara og tók Thomas Tuchel við keflinu.

Tuchel fór alla leið með Chelsea og vann deild þeirra bestu með Silva í hjarta varnarinnar en Lampard fékk hann til félagsins.

Silva kom á frjálsri sölu frá Paris Saint-Germain og var mjög þakklátur Lampard og lét vita af því eftir lokaflautið gegn Manchester City í leik sem vannst 1-0.

„Ég get verið ánægður fyrir hönd leikmanna eins og Mason Mount, Tammy Abraham og eldri leikmanna. Ég þoli ekki að horfa til baka en Thiago Silva sendi mér falleg skilaboð eftir leikinn og þakkaði mér fyrir að fá hann til félagsins," sagði Lampard.

„Fólkið sem vinnur hjá félaginu, sjúkraþjálfararnir, nuddararnir og stuðningsmennirnir, þetta eru vinir mínir. Þegar allt er orðið rólegt á ný þá geturðu horft á alla stöðuna með mun jákvæðari augum en hvert knattspyrnan á það til fara með þig."

Athugasemdir
banner
banner
banner