Fotbolti.net
21.09.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Gibbs-White orðaður við Tottenham - Gæti Conte tekið við Man Utd?

Morgan Gibbs-White.

Morgan Gibbs-White.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Hið umtalaða þriggja vikna landsleikjahlé er brostið á. Þá stíga fjölmiðlar væntanlega á bensíngjöfina þegar kemur að slúðri og vangaveltum.
Tottenham Hotspur íhugar að reyna að fá Morgan Gibbs-White (26), stjörnu Nottingham Forest, í janúar fyrir mögulega 125 milljónir punda. Tottenham var nálægt því að fá enska landsliðsmanninn í félagaskiptaglugganum sumarið 2025. (Football Insider)

Manchester United hefur augastað á Mezian Mesloub (16), portúgölskum unglingalandsliðsmanni og miðjumanni Lens, en United vill fjölga í hópi efnilegra leikmanna hjá félaginu. (Teamtalk)

Forráðamenn Manchester United vilja gjarnan halda JJ Gabriel (15). Hann hefur verið orðaður við Real Madrid og Barcelona og nú hefur Chelsea einnig blandað sér í baráttuna. (Teamtalk)

Manchester United hefur augastað á ítalska stjóranum Antonio Conte (57) sem mögulegum kosti ef gengið undir stjórn Michael Carrick verður ekki betra. (Hard Tackle)

AC Milan og Juventus horfa einnig til Conte, sem bíður eftir rétta tækifærinu til að takast á við næstu áskorun eftir að hafa yfirgefið Napoli í sumar. (Calciomercato)

Atletico Madrid hefur endurvakið áhuga sinn á Ibrahim Maza (20) miðjumanni hjá Bayer Leverkusen. (Goal)

Liverpool, Manchester City, Fulham og Tottenham eru meðal félaga í ensku úrvalsdeildinni sem fylgjast með varnarmanninum Jon Aramburu (24) sem leikur með Real Sociedad og landsliði Venesúela. (Teamtalk)

Liverpool hefur rætt við Lamine Camara (22), miðjumann Mónakó og senegalska landsliðsins, um möguleg félagaskipti í janúar. (Caughtoffside)

Arsenal hefur áhuga á Maximilian Beier (23), sóknarmanni Borussia Dortmund og þýska landsliðsins. (Teamtalk)

Newcastle þarf að mæta samkeppni frá Barcelona um Bo Hegland (22), miðjumann Djurgården og norska landsliðsins. (Football Insider)
Antonio Conte.

Antonio Conte.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.