Fotbolti.net
21.09.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Segir að City hafi átt að fá á sig víti - Hissa að VAR hafi ekki stigið inn í

Segir að City hafi átt að fá á sig víti - Hissa að VAR hafi ekki stigið inn í
Canon

Mynd: EPA

Man City vann Sunderland í viðburðaríkum leik í gær en leiknum lauk með 5-3 sigri City.

City var með 3-2 forystu í hálfleik en Sunderland vildi fá vítaspyrnu þegar Elliot Anderson fékk boltann í höndina í baráttunni við Enzo Le Fee í stöðunni 3-2.
Mark Halsey, fyrrum dómari í úrvalsdeildinni, er á þeirri skoðun að þetta hefði átt að vera víti.

„Sunderland hefði átt að fá vítaspyrnu í seinni hálfleik gegn Manchester City. Þegar City var 3-2 yfir, þá börðust Enzo Le Fee og Elliot Anderson um boltann inni í teignum. Sá síðarnefndi færði handlegginn viljandi að boltanum og sló hann frá sér," sagði Halsey.

„Ég er hissa að Michael Salisbury í VAR herberginu hafi ekki mælt með því að Rob Jones dómari myndi skoða þetta. City var heppið að sleppa með þetta og svo skoraði Antoine Semenyo stuttu síðar og kom City í 4-2 forystu."

„Það er erfitt að sjá þetta sé ekki hendi. Svona er þetta og við verðum að sætta okkur við niðurstöðuna," sagði Regis Le Bris, stjóri Stunderland.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.