Fotbolti.net
21.09.26 - 10:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Brobbey í fámennan hóp - Einn sem hefur gert þetta tvisvar

Í fyrsta sinn í 19 ár

Brobbey í fámennan hóp - Einn sem hefur gert þetta tvisvar
Canon

Mynd: EPA

Brian Brobbey, framherji Sunderland, afrekaði það í gær að skora þrennu í ensku úrvalsdeildinni en því miður dugði það ekki til því Manchester City skoraði fimm mörk gegn Sunderland og vann 5-3.

Hann er einungis fimmti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni sem nær að skora þrennu en endar samt í tapliðinu.
Roque Santa Cruz gerði þetta síðast og var það árið 2007 í 3-5 tapi Blackburn gegn Wigan. Áður höfðu þeir Dwight Yorke (Aston Villa gegn Newcastle), Dion Dublin (Coventry gegn Sheffield Wednesday) og Matt Le Tissier skorað þrennu og tapað leiknum.

Le Tissier er sá eini sem hefur gert það tvisvar því hann gerði það bæði gegn Oldham og Nottingham Forest.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.