Fotbolti.net
20.09.26 - 21:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Breiðablik fyrsta íslenska liðið í EA Sports FC

Breiðablik fyrsta íslenska liðið í EA Sports FC
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Breiðabliks verður hluti af EA SPORTS FC 27 og skrifar þar með nýjan kafla í íslenskri knattspyrnu- og tölvuleikjasögu.
Þar með tekur Breiðablik sæti í sama stafræna knattspyrnuheimi og stærstu félög heims. Leikmenn Breiðabliks verða hluti af leiknum með eigin leikmannseinkunnir og í fyrsta sinn geta leikmenn EA Sports FC um allan heim valið íslenskt félagslið og spilað í grænu treyjunni.

EA Sports FC er ein stærsta íþróttatölvuleikjasería heims og inniheldur hundruð félaga, þúsundir leikmanna og fjölmargar af stærstu knattspyrnudeildum heims.

„Þetta er stór stund fyrir Breiðablik og um leið einstök viðurkenning fyrir íslenska kvennaknattspyrnu. Fyrir okkur snýst þetta líka um sýnileika og fyrirmyndir. Krakkar sem æfa í Breiðabliki geta nú farið heim, kveikt á einum stærsta fótboltaleik heims og spilað sem leikmennirnir sem þau horfa á á Eikarvellinum. Það hefði verið óhugsandi fyrir ekki svo löngu síðan og sýnir vel hversu langt kvennaknattspyrnan er komin hér á landi“ segir Ragna Björg Einarsdóttir formaður meistaraflokksráðs kvenna.

Koma Breiðabliks í EA Sports FC opnar nýjan vettvang til að kynna félagið og íslenska kvennaknattspyrnu fyrir alþjóðlegum hópi knattspyrnu- og tölvuleikjaáhugafólks. Hún endurspeglar jafnframt sterka stöðu kvennaknattspyrnunnar hjá félaginu og þann árangur sem Breiðablik hefur náð innanlands og í Evrópukeppnum í gegnum tíðina.

„Við erum mjög stolt af því að vera fyrsti fulltrúi íslenskra félagsliða í EA Sports. Við fögnum því að taka þátt í þessu verkefni og er þetta ákveðin viðurkenning á því góða starfi sem hefur verið unnið hjá félaginu í gegnum tíðina. Þetta eykur jafnframt enn frekar sýnileika og stækkar kvennaknattspyrnuna í heild sinni.“ segir Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks.

Frá og með 25. september verður því hægt að klæðast grænu treyjunni og spila sem Breiðablik í EA SPORTS FC 27.
Breiðablik fyrsta íslenska liðið í EA Sports FC
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.